Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1966, Blaðsíða 23

Heimilisblaðið - 01.05.1966, Blaðsíða 23
BORINN TIL AUÐS EFTIR Clarence Buddington Kelland. m. HINN BEISKI SANNLEIKUR Ogden Pieter Van Stael starði öldungis orðlaus á fyrirsögnina, sem tilkynnti, að menn hefðu fundið limlest lík hans sjálfs. Þetta var viðurstyggilegt. Hann settist á gryf jubarminn án þess að hirða frekar um ungu stúlkuna með rauðgullna hárið, og reyndi að koma lagi á hugsanir sínar. ,,Ég er alls ekki dáinn,“ sagði hann við sjálfan sig. „Ég sit hér. Það hefur eng- inn myrt mig. Ég ætla mér að setja mig í samband við Ben frænda. Hann hlýtur að kunna einhver ráð. Hinn látni var í fötun- um mínum.“ Tilhugsunin kom köldu vatni til að renna honum milli skinns og hörunds. Það var andstyggileg tilhugsun, að líkið skyldi hafa verið klætt þeim fötum, sem hann sjálfur bar svo seint sem kvöldið áður. Svo varð honum hugsað til draumsins — þessa óvenju raunverulega draums, þar sem hann hafði séð ókunnan mann liggja endi- langan á gólfinu í herbergi, og blóðpollur við öxl hans, en ung stúlka með rauðgullið hár og mjög fáklædd stóð við hliðina. Getur það verið þetta? spurði hann sjálf- an sig. Var það vettvangur morðs, þetta sem hann hafði óvænt og óviljandi hrakizt inn á? Einhver hafði slegið hann í hnakkann, svo að hann missti meðvitund. Þeir gátu hafa rænt hann fötunum við sama tækifæri. Já, vissulega gátu þeir hafa gert það, og bað gat hafa verið morðinginn, sem kom honum í flutningavagninn. Hann var orð- mn viðriðinn morðmál! Hvað átti hann nú að gera? Hann varð að komast í samband við Ben frændá. Hann leit á ungu stúlkuna sem stóð með hattinn í annarri hendinni, en greiddi sér með hinni. Hár hennar var rauðguilið. Það var athyglisvert, að hún hafði nákvæmlega sama háralit og sú um nóttina, og það kom honum ósjálfrátt til að fara að öllu með gát. „Hvaðan komið þér eiginlega?“ spurði hann. „Frá New York,“ svaraði hún. „Voruð þér í New York í gærkvöldi?“ „Hef ég verið að angra yður með nær- göngulum spurningum?” gegndi hún. „Þér eruð sjálfur harla dularfullur." „Voruð þér í New York í gærkvöldi?“ spurði hann aftur og nokkuð ákveðinn. „Ojá, það var ég.“ „Hvers vegna fóruð þér þaðan?“ spurði hann. „Vegna þess að mér fannst malbikið orð- ið heldur heitt til að ganga á,“ svaraði hún. „En nú er röðin komin að mér: Hvað var það sem þér lásuð í blaðinu, sem kom yður til að fölna upp?“ Hann lét sem hann heyrði ekki spurn- ingu hennar. Honum fannst ekki hin rétta stund til að gefa upplýsingar um sjálfa sig, sízt af öllu við ókunna unga stúlku með rauðgullið hár. „Hvað störfuðuð þér í New York?“ spurði hann. „Leyfið mér að sjá blaðið.“ Hún rétti fram höndina. Hann reif blaðið í tættlur og vöðlaði þeim saman milli handanna. „Nú, var það svona alvarlegt," sagði hún og yppti öxlum. Síðan ákvað hún að svara spurningu hans: „Ég fékkst dálítið við að dansa og syngja. En það sem ég helzt fæ peninga fyrir eru mínir vel-löguðu fót- leggir." „Þér komuð akandi í flutningabíl." sagði hann. „Þetta er ómerkileg athugasemd,“ gsgndi H E I M I LI S B L A Ð I Ð 111

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.