Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1966, Side 7

Heimilisblaðið - 01.05.1966, Side 7
lófana upp í loft.“ Hver einasti maður rétti auðsveipur fram hendurnar. Ibn Moosa gekk niður af „hásæti“ sínu. Þegar hann kom að þeim manni, sem hafði farið fyrst- ur inn í tjaldið, beygði' hann sig áfram °g lagði andlitið í útréttar hendurnar. Hann stóð kyrr, ef til vill í fimm sekúndur, áður en hann gekk áfram til hins næsta og þar næsta. Ég starði á hann með opinn munn- inn. Ég var alveg ringlaður. Þegar hann kom að tólfta manninum og hafði beygt andlit sitt niður að höndum hans, sté hann leifturhratt aftur á bak, dró sverð sitt úr slíðrum og hrópaði: „Skitni hundurinn þinn! Þjófurinn þinn! Komdu nieð gullið þegar í stað, annars skal ég rista Þig á kviðinn!" Maðurinn fleygði sér flötum til jarðar °g sárbændi um miskunn; svo spratt hann á fætur, gekk svolítið út fyrir tjaldbúð- irnar, flutti til flatan stein, rótaði frá svo- litlu af lausri mold og sneri aftur með leð- nrpokann minn. „Láttu howadji okkar fá hann!“ Mér var afhentur pokinn og sá mér til gleði, að allir gullpeningarnir voru í hon- um. Því næst var tveim mönnum fyrir- skipað að lemja þjófinn með svipum. Eftir nokkur högg, sem voru ekki allt of hörð, bað ég honum náðar, og hann var látinn laus. Arabahöfðinginn dró sig í hlé inn í tjald sitt, og mennirnir gengu hver til síns starfs. Þegar við riðum áfram næsta morgun, bað ég Arabahöfðingjann að skýra fyrir mér, hvernig hann hefði farið að því að koma upp um þjófinn. Hann leit á mig, brosti íbygginn og sagði: „Þú mátt ekki segja mönnum mínum það, en ég hafði dýft halanum á asnanum mínum niður í myntu-upplausn, sem svo hafði þornað aft- ur. Allir toguðu í halann — nema þjófur- inn. Hendur hans voru þær einu, sem lykt- uðu ekki af myntu.“ „Mashallah! Allah er sannarlega mikill,“ svaraði ég. ■^essi 15 ára stúlka, Janet Peach, er nú byrjuð blikk- smíðanám hjá föður sinum, S0m hefur blikksmíðaverk- stseði i enskum smábæ. Ekki þurfti maðurinn að bíða svona lengi eftir stúlkunni á stefnumótið, heldur notar skyndihjálpin við umferðar- slys í Englandi beinagrind- ina til að vekja athygli á slys- inu. En stúlkan starfar hjá brezka sjónvarpinu og var að kynna sér starfsemi skyndi- hjálparinnar fyrir sjónvarpið. Austurlanda fegurðardís? Nei, þetta er bandaríska kvik- myndaleikkonan Shirley Mae- Lane. I síðustu kvikmynd sinni leikur hún dægurlagasöng- konu í Hongkong. — Myndin heitir „Garnbi". HEIMILISBLAÐIÐ 95

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.