Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1966, Blaðsíða 8

Heimilisblaðið - 01.05.1966, Blaðsíða 8
Höll Abdullah soldóns. sælustaður letingja Eftir David Reed. Stillilegt haf, á litinn sem fagurgljáður smaragð, umlykur þessa dásamlegu ey. — Syfjulegt brim rjálar við hvíta sandströnd- ina. Daglangt er eyjan böðuð gullinni sól miðjarðarbaugsins. Þegar ferðamaðurinn nálgast af sjó, koma í Ijós smám saman hundruð þúsunda af kókóspálmum. Síðan birtist dáindisfag- ur lítill kaupstaður. Skjannahvít höll, bú- staður soldánsins, er frammi við sjávar- bakkann; að baki henni er furðulegt völ- undarhús lítilla og krókóttra gatna. Allt er þetta svið eins og það sé klippt út úr Þús- und og einni nótt. En það er í sjálfu sér ekki svo skrítið, því að hér er um að ræða Zanzibar, síðustu leifar hins víðlenda ríkis Araba, sem á horfinni tíð náði yfir megin- hluta Austur-Afríku. Zanzibar hefur yfirbragð ævintýrisins í enn ríkara mæli heldur en Bagdad, Cairo, Damaskus eða aðrar þær austurlenzkar borgir, sem mest hefur verið rætt um og ritað í því sambandi. Eyjan liggur í Ind- landshafi, sex gráðum fyrir sunnan mið- jarðarhafslínu og tæpa 40 kílómetra undan ströndum Tanganyiku; hér er reyndar um fleiri en eina eyju að ræða. Helzt er eyjan Zanzibar, 1650 ferkílómetrar að stærð, síðan eyjan Pemba, sem er 985 ferkíló- metrar ræktaðs lands, en auk þess eru miklu smærri eyjar og sker. Hið einlita rauða flagg soldánsins blaktir yfir Zanzi- bar, en samhliða því blaktir brezki fáninn — til að undirstrika það, hver hafi hin raunverulegu völd á eyjunum. Síðan 1890 hefur Zanzibar verið brezkt verndarsvæði, 96 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.