Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1977, Blaðsíða 6

Heimilisblaðið - 01.11.1977, Blaðsíða 6
hún við sjálfa sig, opnaði hliðið, gekk upp að dyrunum og bankaði hressilega. Andartak leið henni hálf ónotalega þar sem hún stóð þarna ein á milli þögulla grenitrjánna í fjúkinu, en loks voru dyr- nar opnaðar og notalegur Ijósbjarmi og karlmansandlit blasti við henni. Hún sá strax, að maður þessi var að minnsta kosti tíu árum eldri en hún. Hann var dökkur á hörund, þótt hvítur væri, eins og hann hefði lengi verið í hitabeltissól, og andlit hans var magurt og stórskorið. Augu hans brostu vinalega við henni, og alvörusvipurinn um munn hans mildaðist nokkuð. Hann leit á hana í þögulli spum. „Ég lenti í vandræðum með bílinn minn“, sagði hún. „Ég veit ekki, hvað að honum er, en hann kemst ekki lengra“. „Ég skal koma með yður!“ sagði mað- urinn án frekari málalenginga, og síðan urðu þau samferða út um hliðið þangað sem bíllinn stóð. Maðurinn virti vélina fyrir sér kunnáttusamlega. „Það er ekk- ert við þessu að gera“, sagði hann svo. „Hann kemst ekki lengra næstu dagana“. „En ég þarf að komast til Tyrrer Crove strax í kvöld. Það er beðið þar eftir mér“. Hann ypti öxlum. „Þér komist ekki lengra á þessu kvöldi“. svaraði hann. „Ég hef engan bíl, annars skyldi ég með ánægju aka yður; og þér getið ekki fengið neinn annan bíl í kvöld“. Cristel hefði getað æpt af gremju. „En — hvað á ég þá að gera?“ „Ég neyðist víst til þess að skjóta yfir yður skjólshúsi“. Hún leit kuldalega á hann og með tor- tryggni. Það var grunsamlegt, fannst henni, hvað hann var fljótur að komast að niðurstöðu og taka þessa ákvörðun. Best var að fara að öllu með gát. „Búið þér einn hér?“ spurði hún. „Ef þér haldið að ég hafi eitthvað ó- hreint í huga, þá hafið þér á röngu að standa. Nafn mitt er Grey skipstjóri, sjó- liðsforingi á eftirlaunum. Ég rek smá- gististað hér. Það eru hér tveir gestir hja mér þessa stundina, Twinkle-hjónin- Bæði tvö ljómandi manneskjur. Það er ekki um annað að gera fyrir yður, uní' frú, en að ...“ „Nafn mitt er Cristel". „Og ég heiti Noel að fomafni“. Hún kunni ágætlega við hann. Hú11 óskaði þess næstum, að hún kynni ekh1 eins vel við hann og hún raunverulegí1 gerði. Hann var geðfelldur maður. Grann- vaxinn, dökkur á brún og brá og eitthvað yfirvaldslegt við hann. Hún sagði: ,.É£ er á flótta frá borginni og öllum jólatrjá' num þar. Mér finnst þessi jólastemnin£ kjánaleg“. „Ekki finnst mér nú það“, svaraði hann- Þau gengu inn í fornlega og stóra foV' stofu, og Cristel sá strax, að verið var skreyta allt til hátíðarinnar. „Hamingja11 góða — ég hef nú varla séð annað eins: stundi hún upp. Efst í tröppu stóð roskin11 maður og var að koma fyrir jólaskrauh undir ljósakrónunni, og roskin kona vai' önnum kafin við að punta upp á arinhiH' una. Hún sneri sér að þeirri aðkomnu. „Hvað sé ég“, hálf hrópaði hún. ,,el' það sem mér sýnist, að við séum að & gest. Það var þó gaman!“ Hún gekk tú móts við ungu stúlkuna með alúðle^ fagnaðarbros á andlitinu. „Þetta er ungfrú Cristel“, sagði Noe' að baki henni. „Nafn mitt er frú Twinkle. Og þettu er maðurinn minn þarna í stiganum. V1^ vorum einmitt að sakna þess að hafa ekk1 æsku og gleði í húsinu á sjálfum jólununk og þá komið þér eins og köllluð". „Almáttugur minn“, tautaði Cript^ með sjálfri sér. Hún hafði á tilfinniní' unni, að Noel virti hana fyrir sér spotti í bláum augunum. Svo sagði hann: „Þér getið svo sem sofið í bílnum y®' H E I M I L I S B L A Ð I £* 186

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.