Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1977, Blaðsíða 28

Heimilisblaðið - 01.11.1977, Blaðsíða 28
vikið til hliðar ykkar vegna ... ó, ég vildi, að ég væri keisari í landinu í eina tvo daga, 'þá skyldi ég svei mér kenna bændnnum, hvernig þeir eiga að hegða sér! Ég skvldi breyta ykkur í hrein og bein engilböm . . . það er bara verst, að ég er ekki keisari og verð það aldrei! Skattheimtumaðurinn hneppti að sér úlfskinnsfrakka sínum og reigði sig og ók sér í.honum eins og kjúkl- ingur, sem leitast við að komast úr egginu. — En góði herra skattheimtumaður, Drottinn skapaði heiminn og okkur öll, og hann reiknaði það út, að konur þyrftu ekki á skeggi að halda, og þess vegna fengu þær ekki skegg. Og síðan reiknaði hann út, að asnarnir þyrftu á löngum eyrum að halda, og þess vegna fengu þeir allir hver sín tvö eyru .. . sagði Ondra með upp- gerðarsakleysissvip. — Hætt þú þínum heimskulega þvætt- ingi, og reyndu að s.iá til þess, að við verð- um dálítið fljótari í ferðum! Nú er farið að dimma, og ég verð að komast heim aft- ur, til þess að halda jólin hátíðleg með fjöl- skyldu minni. Svo okrarðu líka, þrjótur- inn þinn — tuttugu ieu fyrir tuttugu kíló- metra! Ég er viss um, að þið bændurnir kunnið listina að fétletta fólk. Sláðu nú 1 hestana, þrjótui-inn þinn! Annars sofna þessar aumu truntur þínar áreiðanlega milli vagnstanganna! — Hott, hott, herrar mínir! Hott, hott! hrópaði Ondra til hvatningar hestunum og smellti með svipunni í loftinu. — „Herrar m.ínir<‘ sagðir þú? Ég held að þér færi betur að kalla þá „bræður“, sagði skattheimtumaðurinn öskureiður. — Því mundu þeir ekki taka vel, herra skattheimtumaður! Það væri herin og bein móðgun að kalla þá ekki herra. Hestarnir mínir eru eins og raunverulegir herrar úr borginni, skal ég segja yður! Þeir haga sér alveg eins og embættismenn hjá yfir- völdunum, fara nákvæmlega eftir fyrir- framgerðri áætlun. Þeir vakna á morgn- ana, og svo gefum við þeim að drekka á vissum tíma og gefum þeim fóðrið sitt- Síðan beitum við þeim fyrir, og þeir halda af stað, það er næstum því hægt að segja- að þeir fari á skrifstofuna sína, og svo halda þeir áfram, bangað til kvöldar. Þeii’ borða kvöldmatinn sinn á ákveðnum tíma, drekka vatnið sitt, „lesa blaðið“ má næst- um því segja, og síðan sofna þeir. Þetta er hreinasta embættismannalíf! — Mér þætti gaman að vita, hvar þ11 hefur drukkið þig fullan! Hættu bessu bulli, segi ég, því að öðrum kosti kem é£ of seint. Þú ert alls ekki heimskulegur aS sjá ungi maður, raunverulega heimskuleg' ur! — Þér þurfið ekki að vera hræddui’> herra skattheimtumaður, á þessum slóð- um eru engir úlfar, sagði ekillinn á þam1 hátt, að hinn ævareiði fulltrúi laganna tók að litast um með athugulu augnaráði. — Ég er ekki hræddur við úlfa, ung1 vinur minn, heldur við að kvefast. Ég hef engan tíma til að iiggja og bylta mér 1 bólinu. Þeir skröngluðust áfram þegjandi stund- arkorn. — Jæja, svo þér eruð hér í embættisei'' indum ? Og hver er það nú, sem á að sýna í tvo heimana í þetta skiptið? Ondra sneri sér að farþeganum ni.eð alvörusvip. Skattheimtumaðurinn hikaði andartat áður en hann svaraði. — 0, jæja, þú getn1 svo sem fengið að vita það. Stanoych0 heitir hann, lítill karl með gildan svíra. — Hann þekki ég. Jæja, já, svo það eX rúgurinn hans, sem þér hafið hugsað í®' ur að taka. Ég verð að segja yður þa^’ herra skattheimtumaður, að Stanoycho el fátækur aumingi, lárið þér nú miskunnin‘l sitja í fyrirrúmi fyrir réttlætinu í þetb1 sinn! Munið þér eftir því, að nú eru — Hann kann að vera fátækur, en han11 er líka hreinræktaður þrjótur! H E I M I L I S B L A Ð IP 208

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.