Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1977, Blaðsíða 12

Heimilisblaðið - 01.11.1977, Blaðsíða 12
Skógarhöggsmaðurinit, sem varð forseti EFTIR N. MADSEN-VORGOD En í nokkrum borgum hafði sorgin og skelfingin brotist út í hemdarverkum. Laugardagsmorguninn söfnuðust saman í New York stórir hópar vopnaðra manna, sem hrópuðu að allir svikarar skyldu deyja. Að lokum voru 50.000 manns saman- komin. Þeir báru með sér gálga og sóru hátíðlega, að hver sem mælti uppreisnar- mönnunum bót, skyldi strax verða hengd- ur. Einhver var nógu ósvífinn til að segja: „Það átti að vera búið að skjóta Lincoln miklu fyrr“. Hann var drepinn á staðnum. Mannfjöldinn réðist á skrifstofur blaðs nokkurs, sem hafði tekið málstað Suður- ríkjanna. Um tíma leit út fyrir, að ekki yrði komist hjá blóðsúthellingum. Þá kom prúðbúinn maður, festulegur á svip, fram á svalir City Hall, þar sem símskeytin voru lesin upp fyrir mann- fjöldann. Hann rétti upp hægri hönd sína, til þess að fá hljóð og talaði með skýrri og hreimfagurri rödd: „Samborgarar! Sorti og myrkur um- kringir allt. En Guð er líka í myrkrinu. Réttlætið er undirstaða hásætis hans, náð og sannleikur stendur fyrir augliti hans. Samborgarar! Guð stjómar, og ennþá er stjórnin í Washington til!“ Hún hafði séð Noel sitja þama niðri með handlegginn utan um Cristel. Að vísu var stúlkan eitthvað klökk, en eins og frú Twinkle sagði við manninn sinn: „Það er ekkert sem færir unga stúlku og ungan mann eins saman og fáein tár. Taktu eft- ir: Þetta á allt eftir að fara á besta veg“. Þessi alvarlegu orð höfðu áhrif. Mann- fjöldinn dreifðist í ró og spekt Ræðumaðurinn var Garfield hershöfð- ingi, sem var sextán árum síðar forseti — og féll sjálfur fyrir morðingjakúlu, fjói'- um mánuðum seinna. Engir syrgðu eins innilega dauða Lin- colns eins og svertingjarnir. Þeir söfn- uðust saman í flokka á götunum og létu sorg sína í ljós í háværu harmakveinn Sorg þeirra var svo innileg og falslaus, að allir hlutu að verða snortnir. Þeir söfn- uðust saman í kirkjurnar til sorgarþjón- ustu, en oft gátu prestar þeirra vart mselt fyrir gráti. Gömul negrakona stóð upp í áheyrenda- hópnum, hún var kengbogin af striti og sliti áranna, hún skalf af geðshræringU’ barði saman hrjúfum lófunum, lyfti tái'" stokknum augum sínum til himins og sagði: „Vegsamaður sé herrann! Massa Lin- coln hafa þeir myrt, en Guð geta þei1’ ekki myrt!“ „Amen, amen“, heyrðist af allra vörum- „Guð geta þeir þó ekki myrt!“ Nú skulum við heyra, hvernig fór f}n' ir morðingjanum. Booth leikari, banamaður LincolnS, hafði fótbrotnað, þegar hann stökk ofn^ á leiksviðið. Hann komst þó út, steig ^ bak hesti sínum og flýði. Hann faldi sig í heyhlöðu í Virginia, ásamt öðrum saim særismanni. En felustaður þeirra fannst og var umkringdur af hermönnum. Fotr ingi herliðsins bað þá að gefast upp. Hm'" old gerði það líka, en Booth hótaði ^ skjóta hvern þann, semfæri inn í hlöðuna- Þá kveiktu hermennirnir í hlöðunni. °& 192 H E I M I L I S B L A Ð I £*

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.