Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1977, Blaðsíða 24

Heimilisblaðið - 01.11.1977, Blaðsíða 24
bandi við þig. Ekkert. Hjá mér ert þú dauður“. Ef hún hefði verið áköf og ásakandi, hefði hann kannske huggað sig við, að hún hefði þó svarað. En það, á hvern hátt hún talaði, kom honum til að hopa ögn aftur á bak og beygja höfuð og herðar eins og heljar þungu oki hefði verið slengt á hann. Sylvía sá það og gat ekki annað en undr- ast, að maður með hans skapgerð gæti bor- ið miklar tilfinningar til konu. Það leið góð stund áður en hann kom upp nokkru orði. ,,Ef þú aðeins vilt hlusta á mig, Sylvía, þá held ég . . .“ „Getur þú ekki skilið, að það þýðir ekk- ert að reyna að snúa sig út úr þessu“, sagði hún harðmælt eins og hún vildi losa hann við þá kvöl, sem. það mundi valda honum að tala um þetta mál. ,.Ég er ekki að hugsa um að ljúga að þér“, sagði Skugginn hægt, um leið og hann lyfti höfðinu með erfiðismunum og reyndi að bera sig cins og áður. „Þótt ég vissi, að lygi gæti unnið álit þitt á mér, mundi ég ekki nota mér það, Sylvía. Það, sem ég hef unnið á móti Tom Converse, er kannske rangt. Eg veit það ekki, en það getur vel verið. Ég krefst ekki, að þú lítir á það öðru vísi en þú gerir núna, og þegar þú lítur yfir minn æviferil, lítur hann ekki vel út í þínum augum. En Sylvía, það er eitt, sem er hreinn sannleikur og mun ætíð verða. Ég elska þig. Hvernig sem ég er á öðrum sviðum, er ég þar fölskvalaus. Ég elska þig, Sylvía. Hugsanirnar um þig hafa alltaf verið það góða í mér, og ég veit, að ég get aldrei glymt þér. Hefur það alls enga þýðingu fyrir þig?“ „Ef ég á að vera hreinskilin, vei'ð ég að játa, að það hefur þýðingu“, svaraði hún. „Það hefur skipt mig svo miklu máli þessi ár, að ég hef lagt mína heilrigðu skyn- semi á hilluna og reynt að hugsa aðeins það besta um þig. En framkoma þín gagn- vart Tom Conversre er lokaþátturinn. Og nú er tjaldið fallið“. „Bara fjandinn tæki þennann Tom Con- verse“, sagði Skugginn með saman bitn- um tönnum. „Ef sá náungi hefði ekki haft svo mikla vitglóru, að . .“ „Þú skalt ekki seg’ja meira“, tók Sylvía fram í fyrir honum. „Æ, Jim, þú veist ekki, hvað þessi orð segja mér. Þú hatai' hann, af því þú veist, að hann er betri en þú“. „Betri?“ sagði Skagginn. „Já, betri ti| að fara með í skógarför. En þegar ég hitti hann . . .“ „Þegar þú hittir hann og stendur auglit1 til auglitis við hann“, sagði unga stúlkan áköf, „þá munt þú liggja eins og sveskja' • „Aldrei... aldrei...!“ „Þú munt gera það, Jim, því Tom er sterkari en þú“. „Sterkari? Hvaða þýðingu hefur þa& hvor er sterkari. Það er bara að vera snai' í snúningum og viss“. „Hann er hvorttveggja. Skoðaðu þinr innri mann, Jim. Þú verður að játa, að Þu ert hræddur við hann. Hugsunin um hann leggur þig í einelti — og skelfir þig“. „Hver segir það?“ spurði Skugginn færðist ofurlítið í herðarnar. „Ég sé það á andlitinu á þér, Jim“, sagðj unga stúlkan blátt áfram. „Þú berð ekk’- höfuðið jafn hátt og áður; þegar fólk tal' ar um þig, þá horfirðu niður fyrir þi£' Þú ert óstyrkur á taugum og skjálfhentui' • „Hönd mín er nógu styrk“. „En ekki þegar þú mætir honum“. „Sylvía, ég held næstum, að þú óskú eftir, að hann drepi mig. Er það tilfellið „Ég vona, að hann moli þig niður“, svai' aði hún. „Og það mun hann líka gera. vona það, því annars veit ég, að þú fyi£11 honum eftir með öllu þínu hatri og reynl1 jafnvel að myrða hann á laun“. Hann var orðinn mjallhvítur í andlitinU’ H E I M I L I S B L A Ð 1 P 204

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.