Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1977, Síða 16

Heimilisblaðið - 01.11.1977, Síða 16
ykkur, að það er ekki neitt til, sem hann ekki þorir — honum þykir gaman að leggja lífið í hættu. Takið hann! Hvers vegna takið þið hann ekki? Orð hennar og útlit hafði enn svo mikil áhrif, að þeir, sem nnæstir stóðu, færðu sig til, svo þeir ættu hægara með að taka hann, ef hann skyldi reyna að flýja. En Jim Cochrane var ekki flótti í huga. Hann tók rólegur hattinn ofan og gekk fram í bjarmann frá bálinu; þar sneri hann sér að ungu stúlkunni og heilsaði henni kurt- eislega. „Ungfrú“, sagði hann með óraskandi ró; og í augnaráði hans var ekki hægt að sjá hina minnstu geðshræringu. „Eg er ókunnugur hér í héraðinu, það er sjálf- sagt þess vegna, að þér takið mig fyrir annan. Ég veit ekki, en það getur verið, að ég líkist Skugganum — ef svo er, þyk- ir mér það miður. En ef þér horfið betur á mig, munðuð þér áreiðanlega sjá, að yð- ur skjátlast“. Hann stóð grafkyrr og rólegur, þessi framkoma hans kom Sylvíu næstum til að súpa hveljur. „Ég hef ör hérna megin á höfðinu“, sagði hann. „Það eitt er næg sönnun þess, að ég er Jim. Cochrane, en ekki Skugginn". „Já — en hverrnig hafið þér fengið þetta ör?“ spurði hún. „Það fékk ég, þegar ég var lítill drengur. Ég datt á gaddavír og hlaut af því mikið svöðusár“ „Það er ekki rétt“, sagði Sylvía. „Þetta ör er af skoti, sem Harvey Conby skaut á yður. Þér hafið sjálfur sagt mér það. Þér vitið það vel. Hans kúla snerti yður svona, en yðar kúla fór í gegnum hjartað á honum“. Svörin og spurningarnar gengu svo ört, að hópurinn færði sig nær. Aðeins Joe Shriner ómakaði sig ekki við að hlusta á, hvað þeir sögðu. Hann spígsporaði í kring og bölvaði mönnum fyrir að hlusta a slíka þvælu. „Getið þi ðekki séð asnamir ykkar, að hún hefur veri ðsend hingað til að slá ryki í augun á ykkur. Það er þess vegna sem hún lætur svona. Hún kemur bara og seg- ir, að einn af okkur sé Skugginn — eng' inn hefur séð andlit hans nema hún, ef það er annar en sá, sem framdi innnbrot- ið í Carlton. En ég segi ykkur satt, að það var Skugginn og enginn annar. Lát- ið þið ykkur kannske detta í hug, að það geri nokkur annar?“ Röksemd Joe Shriners þótti trúlegri en Sylvíu. Hún sá, hvernig þeir hristu höf' «ðin við því, sem hún sagði, en ekki rask- aðist ró Jim Cochrane meðan á þessu stóð eitt augnablik. „Ég man vel, er Harvey Conby vai’ myrtur“, sagði Algie Thomas sheriffí- „Hann hleypti einu sinni af, og Harveí var besta skytta, sem ég hef þekkt. Og ef ég þekki rétt, hefur skotið ekki farið langt frá Skugganum.“ Hann gekk nær og leit á örið, það var langt ör, sem náði alveg yfir höfuðið- „Mér sýnist það nú heldur breitt til þess að það geti verið eftir gaddavíi’*1’ sagði Algie Thomas. Ef Algie hugsaði þetta í alvöru, seri hann sagði, þá var tími til þess kominn fyrir hina að gera það líka. Enginn hrish heldur höfuðið, allir virtust hugsa þetta nánar. „Já það er líka sæmilega breitt“, sagÓJ Jim Cochrane og brosti við. „En ég sk^ segja ykkur, af hverju það er. Það hljóP bólga í sárið, og það hljóp ógurlega upP; Læknirinn varð að skera í það, og það le$ meira en mánuður, þangað til það va> sæmilega gróið“. „Hvar voruð þér þá?“ spurði Algie. „Ég var í Caluon“. „Caluon? Það er yfirgefinnn bær“. 196 H E I M I L I S B L A Ð I V

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.