Heimilisblaðið - 01.11.1977, Page 34
„Það er ekkert gaman að þvo sér á morgnana,
finnst þér það, Palli?“ „Nei, satt segir þú, Kalli, en
nú fæ ég góða hugmynd. Við skulum koma í vatns-
stríö, þá verðum við hreinir með það sama!“ Þeir
flýta sér að ná í hjólhestapumpurnar sínar og byrja
svo að sprauta hvor á annan. „En gaman, þetta er
eitthvað annað en að standa við vatnsfatið að Þv0
sér“. Og þeir ákveða að gera þetta á hverjum morgni-
En þegar þeir eru klæddir og ætla að fara að tak»
til í baðherberginu verða þeir ásáttir um, að fljót'
legra muni vera að þvo sér með gömlu aðferðinni.
„Verið öll sæl, nú höldum við inn í eyðimörkina
1 rannsóknarför", segja Kalli og Palli, „og það getur
orðið langt þangað til við komum aftur!" Léttir í
lund halda þeir af stað, því nú langar þá til að lenda
í ævintýrum, en æ, hvað það er heitt. Áður en langt
um líður eru þeir að niðurlotum komnir ,því hvergi
er ský á himni, og sandurinn brennandi heitur. „AÞ’
sjáðu!" stynur Palli, „þarna fljúga tvær trönur!“
Fuglarnir voru komnir til að bjarga þessum tvein1
vinum sínum. Þeir fljúga yfir þeim, svo að Kalll og
Palli ganga í sgugganum af þeim heimleiðis og þan»'
ig endaði rannsóknarför þeirra.