Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1918, Blaðsíða 40
198
Alexander Kerensky.
|IÐUNN
stjórnmálaílokka í landinu — miðlunarmanna, frjáls-
lynda flokksins, gjörbótamanna og jafnaðarmanna —
var farsællega um garð gengin, urðu flokkar þessir
að reyna að koma sér saman um að mynda bráða-
birgðarstjórn. Borgara-flokkarnir svonefndu, sem
skildist það ofur vel, hver.su happadrjúgan þálí jafn-
aðarmenn hefðu átt í byltingunni, og töldu á hinn
bóginn sjálfsagt, að allir flokkarnir tækju þátt í
myndun hinnar nýju stjórnar, svo að hún gæti talist
umbjóðandi allra stétta í landinu og hefði óskorað
fylgi þjóðarinnar, buðu þá fulltrúum »verkamanna-
og hermannaráðsins« að mynda samsteypuráðuneyti
og taka sæti í hinni nýju stjórn. En þetla fulltrúaráð
jafnaðarmanna neilaði að vanda öllu samneyli við
horgaraflokkana og vildi ekki taka þátt í myndun
sljórnarinnar, en kaus heldur að sitja hjá og sjá,
liverju fram yndi, svo að það befði frjálsar hendur
að finna að og taka í taumana, ef þurfa þætti. Að
eins einn af fulltrúum ráðs þessa, er á rússnesku
nefnist soviet, liafði hugrekki til þess að brjóta bág
við skoðanir jafnaðarmanna og leggja stöðu sina
sem verkamannaforingi í hætlu til þess að fylgja
hinni nýju stjórn að málum, og það var — Kerensky.
Þurfti til þessa mikils áræðis, því að mikið var í
húfi, áhæltan feikileg og örðugleikarnir, sem hiðu
hinnar nýju stjórnar, svo miklir, að naumast gat
nokkur maður vænst að komast klakklaust út úr
þeim, hvað þá heldur að auka með því fylgi sitt og
álit. En ef nokkur einn maður hefði getað sigrað
þessa örðugleika, þá er það nú þegar sýnt á reynslu
undanfarandi mánaða, að Kerensky liefði verið allra
manna færastur til þess.
Iverensky varð fyrst dómsmálaráðherra í hinni
nýju stjórn, og sem dómsmálaráðherra byltingar-
manna barg hann þegar lieiðri og sæmd Rússlands
með því að girða fyrir öll pólitísk morð og hlóðs-