Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1918, Blaðsíða 78
236 Ritsjá. i iðunn
Axel Thorsteinson: Nýir timar. Bókaverzlun Ársæls
Árnasonar. Rvik 1917.
Saga þessi, er lýsir lífinu í Silfurvík, er einskonar Bío-
mynd af lélegasta tægi. Par rekur ein myndin aöra, en
lítil eöa engin grein gerö fyrir umskiftunum, hversu snögg
sem þau eru. Ekki vantar þaö, að leiktjöldin séu nógu sé-
leg: Blál'ell — Silfrastaðir — Silfurvik — Silfurfjörður og
silfurberg á annari liverri síðu. En þótt umhverfið sé
fagurl, þá er fólkið ekki eftir þvi. Drabb, ósiðlæti og ólög-
hlýðni ganga fjöllunum hærra. Er það líkast því, sem
segir í vísunni:
Landið er fagurt og fritt,
en fólkið er helv ... skítt.
En livað gerir það til? Alt snýst svo að segja á svip-
stundu og án frekari umsvifa upp í kristilegheit, bindindi
og andatrúl Drykkjusvolinn verður alt í einu að eldheitum
bindindismanni (bls. 46), og bugsandi menn eins og lækn-
irinn verða alt í einu að fíflum (bls. 50 og 76). Allir verðá
fullir andatrúar, áður en nokkrar tilraunir eru gerðar.
En hvernig menn hafi öðlast þessa trúarvissu, er lítil eða
engin grein gerð fyrir í sögunni. Um að gera að safna
öllum undir einn hatt, í eitt félag, er byggist á kristilegum
grundvelli, bindindi og andatrú, þó þannig, að félagsmenn
liafi að öðru leyti fullkomið trúfrelsi! (bls. 63). Og í lok
sögunnar segir ein söguhetjan, Kristín prestsdóttir: »Við
hættum ekki fyr en öll Silfurvík er orðin eitt heimili, eitt
vinaheimili, þar sem trú, ást og vinátta ríkir.-------Pegar
friður og gleði trúarinnar skín á hverju andliti, koma
nýir tímar. Rá verður unaðslegt að lifa«.
Saga þessi er meingölluð frá upphafi til enda. Að vísu
er nokkur grein gerð fyrir sinnaskiftum Árna, en engin
grein gerð fyrir sinnaskiftum Sæmundar; lifi Kristínar
lýst að Iitlu eða engu, og ekki önnur grein gerð fyrir skoð-
unum læknisins en að hann hafi lesið rit spíritista. Hefir
höf. þá ekki heyrt getið um það, sem nefnist motivalion í
sögum og leikritum, að breytingar þær, sem maður á að
geta skilið og fest trúnað á, komi ekki óundirbúið eöa eins
og fjandinn úr sauöarleggnum? Eða hvi gleymir hann
þessari greinargerð? Hún kemur alls ekki fyrir i þessari
sögu, heldur í annari bók, í niðurlaginu á »Sex sögur«.