Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1918, Blaðsíða 76
231
Ritsjá.
| IÐUNN
af því að hún ræðir mest um afskifli kennaranna af börn-
unum, er að mörgu lej'ti góð og gagnleg. fað er sýnilega
góður og reyndur kennari, sem hefir samið hana, maður,
sem kann tök á flestu því, sem fyrir kann að koma í
skólalífinu. Og sjálfur er hann sýnilega ekki af gamla,
heldur af »nýja skólanum«, er reynir að aga börnin með
lempni og lagi og þroska alla nýtilega hæfileika þeirra, í
stað þess að hirta þau og skamma og gera þau að beygj-
um eða að þrákálfum. Bókin á þvi erindi til margra. Pað
helzt mætti að lienni finna, að hún er ekki nógu skipu-
ieg, ekki laus við endurtekningar og óþarfa mælgi, og virð-
ist það stafa helzt af því, að liöf. hefir ekki næga sálar-
fræðislega þekkingu til þess að láta eitt reka annað með
eðlilegum hætti.
Rýðingin, sem Jón Þórarinsson fræðslumálasljóri hefir
annast, virðist yfirleitt létt og lipur. Pó eru þar of mörg
orð og orðatiltæki, sem finna mætti að, og málið yfirleitt
ekki vandað. Prófarkalestur lieíir verið í lakara lagi og
prentvillur margar og setning greinarmerkja næsta skrílin.
En þrátt fyrir þessa smágalla er hókin góð og vel þess
verð, að hæði foreldrar og kennarar kaupi hana. Hún ætti
að geta breytt til liins betra hugsunarhætti margra í kenslu-
málum.
Vörður. Málgagn barnakennara. Ritsljóri Hallgr. Jóixs-
son, Grundarstig 17, Rvík.
»Iðunn« vill benda á þetta litla mánaðarblað, sem á
að vera málsvari »þarfasta þjónsins«, þeirrar stéttar, sem
farið er verst með i landinu — alþýðukennaranna. Pað
er þjóðarsmán, hversu kjör þessara manna eru bág, og
veltur þó framtíð þjóðarinnar einna mest á því, hversu
þeir leysa verk sitt af hendi. En þeirra hlutur er alstaðar
fyrir borð borinn, jafnvel á þingi þjóðarinnar. En hina
»pólilísku skraffinna« mætti minna á það, sem Murphy
segir um Bandaríkin: »Framtíð Bandaríkjanna er ekki eins
mikið komin undir því, hver verður næsli forseti þeirra,
né undir þvi, hver stjórnmálaflokkurinn situr að völdum
næstu fjögur eða fjörutíu ár, eins og undir því, liverjir
■eiga að kenna börnunum og stjórna þeim« — og — mælti
bæta við — hver árangur verður af starfi þeirra. En livers