Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1921, Page 53

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1921, Page 53
JÐDNN) G. F.: Tvö kvæöi. 291 Brostir þú við blómi hverju, blómin hlógu þér á mót. Hulda landsins, hýr í bragði, hefir í seli um efstu-grjót. Þú varst hennar góði gestur, gaf hún þér með tignar-yl anganbrjóst sitt unglinginum, ör við þann, sem vinnur til. Vökumanns er vita kynti verður minst með þakkar-bug, þegar birtir yfir enni æskunnar, sem geymir dug, þess er jafnan þráði að vísa þjóðmenning á rétta leið — úrvalsmanns, er æsku vora efldi til að þreyta skeið. Lengi gaztu lyndismóki lagt til byrinn fram á mið, lagt til röst í ládeyðuna, lygnu breytt í straumanið, eldinn sótt tii útbýtingar, áhuga- og vilja-glóð, manndóm hvatt að lifa í ljósi, leggja andans gull í sjóð. Slökt er ljós á aftni árla: ævikyndilt snildarmanns — myrkvaður á menlahæðum meginvili Norðurlands. — Þegar litverp lauf á kvisti lúta og falla í skjólin sín, mér er bent á mína götu — mína leið: 1 átt til þín.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.