Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1927, Síða 6
96
ísland fullvalda ríki“.
IÐUNN
honum þættu íslendingar ekki mega án vera. Og á Þing-
vallafundinum hefur ekki verið gott tækifæri til að fara
neitt ítarlega út í það, enda hefur honum líklega komið
á óvart hvað fundarmenn voru alt í einu orðnir fjar-
lægir honum og óráðþægnir. Og það fór svo, að þrátt
fyrir mótspyrnu hans samþykkti mikill meiri hluti fundar-
manna tillögu á þá leið, að landsmenn skyldu standa í
því einu sambandi við Danaveldi, að þeir lytu hinum
sama konungi. Alyktað var að senda menn á konungs-
fund til þess að flytja málið við hann. — Þegar Jón
Sigurðsson kom til Reykjavíkur af fundinum, er mælt
að ]ón Hjaltalín landlæknir hafi sagt við hann: »Þú ert
búinn að vekja upp draug sem þú getur ekki kveðið
niður aftur*. Þetta gat til sanns vegar færzt, í bili, en
ekki varð það lengi orð að sönnu. Svo gersamlega tókst
]óni Sigurðssyni að fá þingmenn á sitt band þá um
sumarið, að ekki var einungis hætt við sendiförina til
konungs, heldur gætti ályktunar Þingvallafundarins ekk-
ert í ályktun alþingis í stjórnarmálinu þetta sama sumar.
Svo mikils er vert að til sé maður sem getur lekið í
taumana, þegar á liggur.
Þegar komið var að því, 33—34 árum síðar en þetta
gerðist, að farið yrði að semja við Dani um sambands-
málið, létu sex blaðstjórar (Nýi Sáttmáli bls. 137—140)
út frá sér ganga ávarp til þjóðarinnar og brýndu fyrir
henni að fylkja sér nú undir merki ]óns Sigurðssonar.
Einn ávarpsmanna tók fram í blaði sínu, að það væri
barnaskapur að hugsa að bláfátæk þjóð, einar 80 þús-
undir manna, gæti komizt af án sambands við aðra þjóð
og að þannig hugsaði fráleitt nokkur maður. En enginn
skyldi fullyrða neitt um það hvað þessi bláfátæka þjóð
á til í fórum sínum eða á ekki. Misseri síðar sneru þessir
sex menn við blaðinu og tóku upp merki Þingvallafund-