Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1927, Page 37
IÐUNN
Hvalveiðar í Suðurhöfum.
127
800 sálir, og þessi sjóorusta er enn þann dag í dag
aðalumræðuefnið. Menn segja að eftir 2—3 hundruð ár
muni hún enn verða aðalumræðuefnið, svo hægfara er
þar alt og tilbreytingasnautt.
Svo er haldið beint suður í íshaf. Ekki líður á löngu
áður en fyrsti ísjakinn heilsar skipinu og svo gerast þeir
æ nærgöngulli. Stormar og illviðri eru í lofti, þó að
komið sé fram á sumar. Og á sjálfum jólunum komust
þeir í höfn.1)
Aðalbækistöð skipanna er einkennileg eyja, sem heitir
Deception island eða Vonbrigðaeyjan á íslenzku. Hún
er með þeim undarlega hætti mynduð, að stóreflis eld-
fjall hefir þar sigið í sjó með gíg og öllu saman. Hafið
hefir brotist inn um gígsbarminn á einum stað og er
þar nú innsigling, en annars girðir gígsbarmurinn alt í
kring, svo að þar inni er hlé fyrir öllum veðrum. Höfnin
er sem sé ekkert annað en gígurinn, sem er fullur af sjó.
Væri óskandi að fjallið fyndi ekki upp á því að fara að
gjósa eftir gamalli venju meðan skipin liggja þarna, því
að þá þætti líklega einhverjum hlýna nóg þótt suður í
íshafi sé.
Strax þegar skipið hefir varpað akkerum og búið er
að tjóðra það vandlega með strengjum í allar áttir, er
tekið til óspiltra mála, og breytist skipið þá á svipstundu í
stóreflis bræðsluverksmiðju. Hvalbátarnir koma svo með
veiðina að hliðinni á móðurskipinu og þar er hvölunum
komið fyrir. Hópur manna tekur þegar að fletta spikinu
af með löngum Ijáum, en jafnóðum og spikflísin er
þannig losuð, er krækt í hana járnkrókum og hún dregin
1) Eins og alkunnugt er, eru árstíðir á suðurhveli jarðar mót-
settar því sem hér er: vetur þegar hér er sumar og vor þegar
hér er haust.