Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1927, Blaðsíða 72
162
Þjóðmálastefnur.
IÐUNN
gerð var um samband landanna, var verkefni þeirra í
raun réttri lokið. Heimastjórnarflokkurinn tók örlögum
sínum með skilningi og víðsýni. Liðsmenn hans tóku
sér stöðu í hinum nýju flokkum, sem risu á rústum eldri
flokkaskipunar. Sjálfstæðismenn voru tregari að hlíta
dómsorði tímans. Mun hvorttveggja hafa valdið, að sum-
um þeirra manna þætti nauðsyn til bera, að halda sér-
vörð um lagalega hlið fengins sjálfstæðis og að öðrum
hefir þótt nafn flokksins og saga vel mega varpa ljóma
yfir þá sjálfa og veita þeim styrkari stjórnmálaaðstöðu.
Þannig hefir flokkur þessi verið lengi í fjörbrotum, sem
flestir landsmenn myndu kjósa að nú væri lokið.
A rústum þessara eldri flokka eru risnir þrír flokkar
f landinu: íhaldsflokkurinn, flokkur Jafnaðarmanna og
Framsóknarflokkurinn. Þessir flokkar hafa í umræðum
verið auðkendir eftir þeim ráðum, sem hver þeirra fyrir
sig vill hlíta um eignarrétt, atvinnuskipulag og viðskifti
manna á milli, og nefndir samkepnismenn, sameignar-
menn og samvinnumenn. Skal nú hver flokkur um sig
skilgreindur lítið eitt.
Flokkur samkepnismanna, Ihaldsflokkurinn, er yfirleitt
skipaður mönnum, sem líta svo á, að >óheft einstakl-
ingsframtak* og »frjáls samkepni* verði drjúgast til al-
mennra framfara. Þeir telja, sem rétt er, að samkepnin
hafi leitt mannkynið til mjög hárra marka í ýmsum
greinum og þeir telja, að í mannlífinu hljóti að ráða
sömu lög og í hinni óheftu og óþjálfuðu náttúru, þar
sem lífsverurnar heyja stöðuga baráttu um aðstöðu og
lífsviðurværi. Mennirnir séu, eins og aðrar lífsverur, mis-
jafnir að orku og hæfileikum og að þessháttar mismunur
hljóti að skapa þeim tilsvarandi yfirburði og réttindi til
þess að neyta hæfileika sinna að fullu. Sumir þessara
manna telja, að hin háu mörk séu ávöxtur þeirra fórna,