Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1927, Qupperneq 75
IÐUNN
Þjóðmálastefnur.
165-
horfið niður í óskapnað mannspillingarinnar og orðið
fótaskinn fépúka og þjóðfélagslegra illræðismanna.
Flokk þennan fylla öreigar landsins eða þeir menn,
sem engin eiga framleiðslutækin, en nærast af launum
fyrir vinnu sína. Sömuleiðis skipa sér undir þetta merki
nokkrir af embættismönnum og yngri mentamönnum
landsins. Kröfurnar eru þær, að einstaklingarnir verði
sviftir umráðum yfir auðlindum, veltufé og atvinnurekstri
þjóðlandanna, en að almenningur taki hvorttveggja í
sínar eigin hendur gegnum löggjöf og stjórn. Þeir telja,
að samkvæmt eðlilegum lögum eigi auðlindir jarðar að
vera sameiginleg eign allra manna og jafnframt hag-
nýttar á sameiginlegan hátt með heill og velfarnað al-
mennings fyrir augum. í stað einstaklingsframtaks og
skipulagslausrar samkepni eigi að koma sameign og
þjóðnýting atvinnureksturs og viðskifta eftir því, sem
framast verður við komið.
Þessir menn eru sammála um yzta takmark, en inn-
byrðis ósamþykkir um leiðir að markinu, eftir því sem
þeir eru skapi farnir og eftir því sem aðstöðu þeirra er
háttað. Sumir kjósa að nálgast markið eftir þjóðræðis-
leiðinni og vinna meiri hluta atkvæða á löggjafarþing-
um. Oðrum þykir sú leið seinfarin og vilja umbylta nú
verandi þjóðfélags- og atvinnuskipulagi með snöggum
hætti, ef ekki á skaplegan hátt, þá með ofbeldi, eins
og rússnesku byltingamennirnir gerðu. Þessi stefnuinunur
hefir greint jafnaðarmenn í meira og minna ósamþykkar
sveitir hvarvetna um heim. Mun hans og gæta einnig
hér á landi, þó að færri kunni að vera hinir örgeðja
menn en andstæðingar jafnaðarmanna vilja láta mönnum
skiljast.
Þriðji flokkurinn, samvinnumenn eða Framsóknar-
flokksmenn, telur, að með átökum áðurnefndra flokka