Kirkjuritið - 01.06.1937, Page 10

Kirkjuritið - 01.06.1937, Page 10
Kirkjuritið. RÍKI, KIRKJA OG SKÓLAR. ERINDI FLUTT Á KIRKJUFUNDI. Eins og' allir vita, er hin evangelisk-lúterska kirkja samkvæmt stjórnarskrá vorri þjóðkirkja á íslandi. Að lögum eru landsmenn allir meðlimir hennar, nema öðrum trúarflokkum tilheyri eða sagt hafi sig úr henni * ella. Ríkið leggur lienni til slarfsmenn og launar þá. Kirkjan er þannig stofnun, er starfar í þjónustu ríkis- ins. Með því er viðurkent, að hún hafi hlutverk að vinna i þágu alþjóðar. Að vísu er liið þjóðfélagslega hlutverk kirkjunnar af mörgum vanmetið og gagnsemi kirkjunnar sem þjóð- nýtrar stofnunar mjög dregin í efa. Vilja sumir álíta hana algjörlega gagnslausa, en aðrir beinlínis fjandsam- lega þrifum og þörfum almennings. Sú skoðun virðist hýsna úthreidd, að vel sé hægl að komast af án viðtækra eða náinna afskifla af hálfu kirkj- unnar. Þjóðin hafi i raun og veru ekki þörf fyrir starf hennar, enda þótt alþýða manna hafi ekki enn gert sér það fyllilega ljóst. Það sé því rétt að hjálpa þjóðinni til skilnings á þarfleysi kirkjunnar með því að venja hana smátt og smátt undan áhrifum hennar. Kemur þessi hugsunarháttur berast í ljós í prestafækkunartillögum launamálanefndar, sem virðast beinlínis stefna að þessu marki, enda þótt það bafi aldrei verið játað opinberlega. Þessi skoðun er að visu ekki ávalt í beinni andstöðu við kirkjuna. En því er haldið fram, að trúrækni og kirkju- rækni séu hrein aukaatriði í lífi manna. Engin ástæða sé þvi til að efla þessa tvo þætti þjóðlifsins, enda þólt hitt sé kanske ekki rétt að svipta þá, er þörf finna, tækifær-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.