Kirkjuritið - 01.06.1937, Qupperneq 16

Kirkjuritið - 01.06.1937, Qupperneq 16
214 Þorgrimur Sigurðsson: Kirkjuritið. víða lokaður. Það þarf að opna liann. Það þarf að veiia kirkjunni aðgang að honum. Á ég þar við skólana, hin- ar mörgu og glæsilegu mentastofnanir fyrir æskulýð þessa lands. Innan skólanna þarf að veita þjóðkirkjunni nýtt starfs- svið. Þar er hinn frjósami akur, sem yrkja þarf vel. Námsárin eiga að vera undirbúningsskeið. Þá er lífs- skoðunin að myndast og lífsstefnan að mótast. Aldrei eru menn opnari fyrir hverskonar áhrifum en einmitt á þeim aldri. Það er illa farið, ef kristilegu áhrifin verða þá að þoka fvrir öðrum. Það er óbætanlegt tjón, ef kristin trú fær ekki að vinda sinn þátt í þroskavef hins unga námsfólks. En ríkið leggur skólunum enga skvldu á Iierðar um það, að skajta og efla kristlega lífsskoðun með nemendum sínum. Kristnum fræðum er þar óviðast ætlað neitt sérstakt rúm. Skólunum er ekki skylt að vera í neinni samvinnu við kirkjuna. Ég hefi því ekki á neinn hátt viljað ásaka skólana sjálfa, er ég sagði, að þeir væri kirkjunni lokaðir. I allmörgum skólum standa dyrnar opnar þeim kirkjunnar mönnum, er þar vilja láta til sín heyra. Sumir þeirra liafa líka starfsmenn kirkjunnar i þjónustu sinni og' vilanlega marga kristilega sinnaða kennara. En starf þessara manna i kristilega átl lilýtur að verða í molum, meðan það er ekki skipulagt og myndar engan fastan lið í kensluáætlun skólanna. Það sem ég á við með þvi, að skólarnir verði opnaðir fyrir kirkjuna, er það, að fyrir- skipuð verði af hálfu hins opinbera kristileg fræðsla i öllum ríkisskólum. Þessi fræðsla vrði falin kirkjunni, þannig að hún eignaðist sinn fulltrúa i kennaraliði hvers einasta skóla. Hvernig henni yrði að öðru leyli fyrir komið, mun ég að sinni alls engar tillögur gera um. Til þess hefi ég hvorki næga prestlega reynslu né heldur kennaraþekkingu. Að sjálfsögðu yrði þessi starf- semi skipulögð að ráði og yfirsýn beztu manna kirkj- unnar og til hennar valdir hæfir menn. Vissulega yröi

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.