Kirkjuritið - 01.06.1937, Blaðsíða 23
Kirkjuritið.
Kirkjugarðar.
221
eða aðrar tillögur í svipaða átt, teldi ég lieppilegast, að
þær tillögur yrðu lagðar fyrir alla söfnuði landsins til
álita. Ælti þá að verða auðvelt að fá Alþingi til að
breyta kirkjugarðslögunum i samræmi við óskir meiri
hluta safnaðanna um þessi atriði.
Kirkjugarðar landsins eru víða i megnustu óliirðu.
Þeir eru þjóðarskömm. Úr þessu verður að bæta. Annað
er oss ekki samboðið. Kirkjugarðarnir eiga að verða
þjóðarsómi — ekki þjóðarskömm. Á næsln árum eiga
þeir að verða ekki aðeins alfriðaðir reitir, traustlega og'
smekklega girtir, heldur einnig þeir stílföstu skógi-
klæddu og hlýlegu griðaslaðir, þar sem endurminning-
ar vaka um látinn vin, og þar sem liin einföldn en
traustu minnismerki, eins á liverri gröf, vekja í sál veg-
farandans hljóðan liátiðleikablæ og minna á hina miklu
alvöru dauðans, sem engum lilífir, heldur gjörir alla
jafna.
Sveinn Víkingur.