Kirkjuritið - 01.06.1937, Page 38

Kirkjuritið - 01.06.1937, Page 38
INNLENDAR FRÉTTIR. KirkjuritiÖ. Séra Sigfús Jónsson á SauÖárkróki, fyrruin prestur að Mælifelli, andaðist 8. þ. m. Minningarorð um hann munu birtast i næsta hefti Kirkjuritsins. Kirkjubygging í Laugarnesskólahverfi. í síðasta hefti Kirkjuritsins var þess gelið, að fastákveðið væri að hefja kirkjubygginguna í Laugarnesskólahverfi nú í sumar, en síðan hefir fengist full vissa fyrir þvi, að Laugarnesskólinn muni fást áfram til guðsþjónustuhalds næsta vetur, og þykir þvi — eins og eðlilegt er — hagkvæmt að fresta kirkjubyggingu uni sinn, unz meira fé verður fyrir hendi til hennar. Safnaðarlif glæðist þarna meir og meir með samtaka og fórnfúsum mönnum. Eiríkur Eiríksson cand. theol. er nýkminn heim úr utanför sinni, sem staðið hefir læpl ár. Hann hefir stundað guðfræðinám af kappi og jafnframt víða faríð, m. a. um Sviss og Frakkland. Nýr vígslubiskup fjTÍr Hólastifti hið forna. Hinn 2. þ. m. voru talin atkvæði þeirra, sem tekið liöfðu þátt í kosningu vígslubiskups fyrir hið forna Hólastifti í stað Hálf- dánar Guðjónssonar vigslubiskups. Þátttakan var almenn, 27 kusu af 29 atkvæðisbærum mönnum. Séra Friðrik Rafnar á Akureyri hlaut meira en helming atkvæða, eða l(i alls, og er þannig rétt kjörinn vigslubiskup. Hin 11 atkvæðin dreifðust á 5 presta og prófasta. Kirkjuritið óskar iiýja vígslubiskupn- um allrar blessunar. Séra Jón Þorvarðsson prófastur í Vík hefir veitt forstöðu unglingaskólanum þar undanfarna vetur og haft mikla kenslu á hendi við hann. Skólinn vinnur liið þarf- asta starf fyrir unglinga í kauptúninu og nágrenni jiess. Embættispróf í guðfræði. Gunnar Sigurjónsson lauk 1. ]>. m. embættisprófi í guðfræði með í. einkunn, 107 stigum. Hann er einn af ritstjórum Bjarma. Ferðalög presta og leikmanna um landið til þess að efla samstarf að kristindómsmálum munu halda áfram á þessu sumri eins og undanfarið. Æskilegt væri,

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.