Kirkjuritið - 01.01.1938, Síða 43
Kirkjuritið.
íslenzkar bækur.
37
þroska- og starfsárum haföi veriö honum svo rik livöt
til djarfmannlegrar lifsbaráttu. En dauðinn veitti hon-
um friðsæla lausn frá öllum lieimsins hörmum á mjög
hagkvæmum tíma. Eftir lifir hans ágæta kona, frú Guð-
ríður, háöldruð og þrotin að heilsu, og þrir ungir sonar-
synir, nú búsettir í Kaupmannahöfn.
Útför séra Ólafs fór fram frá frikirkjunni í Reykja-
vík laugardaginn 4. des. síðastl. að viðstöddu miklu fjöl-
menni. Við útför hans töluðu séra Bjarni Jónsson vígslu-
biskup, samverkamaður séra Ólafs um mörg ár, og fri-
kirkjuprestarnir báðir, séra Árni Sigurðsson og séra Jón
Auðuns.
Ég vil svo Ijúka þessum minningarorðum um séra
Ólaf Ólafsson með þeirri ósk, að hinni íslenzku kirkju
megi gefast af Guði sem flestir áhrifamenn, slíkir sem
séra Ólafur var.
Árni Sigurðsson.
ÍSLENZKAR BÆKUR
sendar til umsagnar.
Kver til fermingarundirbúnings ungmenna. Þorsteinn Kristjáns-
•son tók saman. ísafoldarprentsmiðja, Rvík. 1937.
Þetta kver, sem ber vitni um lofsverðan dugnað og áhuga
höfundar, er hin síðasta tilraun, sem fram hefir komið til að
bæta úr þeirri þörf, sem margir prestar finna á því að hafa hand-
hæga og heppilega bók til afnota við fermingarundirbúning
barna. Höfundur hefur valið þá leið, að skipa allmörgum merk-
um ritningarstöðum saman eftir efni, og er röðin trúfræðileg og í
aðalatriðum þessi: Kenningin um Guð,-um manninn, um Jesú
Krist, um samband Guðs' og manns, um siðgóða hreytni og um
siðustu afdrifin. í viðbæti eru siðan „Faðir vor<l og blessunar-
orðin, boðorðin og trúarjátningin.
Það er vafalaust rétt aðferð, að byggja uppfræðslu í kristnum
dómi fyrst og frems't á frumheimildunum, og fyrir niínum skiln-
ingi er ekki þörf annarar kennslubókar í kristnum fræðum en