Kirkjuritið - 01.03.1941, Blaðsíða 3
Kirkjuritið.
Fylgdin.
(Lag: Eg heyrfi<i Jesú himneskt orð).
Til Emmaus þeir lögðu leið
með látna von í hug,
en þeim í hjarta sorgin sveið
og svifti ró og dug.
Og slíka ferð vér förum enn
með fullan barm af sorg,
með dánar vonir, haust í hug
og hrunda skýjaborg.
Þá boðar hann sitt himneskt orð,
er hug vorn allan sér,
og þekkir öll hin þungu spor.
og það, er sál vor ber.
En yfir lífið útsjón ný
og æðri birtist þá.
Vér öðlumst nýja dirfð og dug,
því drottinn er oss hjá.
Er skyggir lífsins skeiði á,
vér skynjum návist hans,
er fyllir hjartað friði’ og ró
hins fyrirheitna lands.
Oss skilst, hann er vor líkn og ljós,
og lífsins mikla hnoss,
og finnum, hvílík farsæld er,
að fylgd hann veitir oss.
Einar M. Jónsson.