Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.03.1941, Page 16

Kirkjuritið - 01.03.1941, Page 16
94 M. J.: Mennirnir við vöggu kristninnar. Mar/. Festus: „Óður ertu orðinn, Páll; hið mikla bókvit þitl gerir þig óðan!“ Má nærri geta, hversu hamslaus mælska Páls má hafa verið, þar sem tilvitnunum í ritninguna hefir ringt yfir þá og ályktanir og eggjunai-orð flogið í skæðadrífu, þar til Festusi ofbýður svo, að hann fær ekki orða bundist. Eg hef oft óskað, að eg hefði verið þarna í salnum og heyrt og skilið ræðu Páls. Bréf Páls eru víst lítið lesin hér á landi nema af guð- fræðingum. Hvers vegna? Mönnum finst þau þur og þung. 1 raun og sannleika eru þau sönn meistaraverk að stíl og fjöri. Eg skrifaði um þau i Prestafélagsritið 1922 og verð að vitna til þess hér, þvi að það þarf lengra mál til þess að lýsa snild þeirra en það, sem liér er kost- ur á. En þó ekki væri annað en skáldleg andagift þeirra, þá ætti hún að vera nóg til þess að réttlæta þá vinnu, sem fer í að lesa þau. Þau eru öll til samans innan við 100 meðalstórar blaðsíður. Mynd Páls er í raun og veru einföld í frumdráttum sínum. Páll er heilstevptur maður, ef svo má að orði kveða, ósamsettur, allur úr einum málmi. Hann gnæfir þarna í tign sinni og veldi, foringjaeðlið, sem við sjáum á myndinni á bronsskildinum. Hann gnæfir yfir alla samtíð sina. Nærri má geta, að þessi maður hefir orðið ókrýndur konungur þessarar hreyfingar hér á jörð, jarl konungsins himneska. Að minsta kosti hljóta þeir, sem telja kristindóminn eiginlega verk Páls, að halda, að hann hljóti að hafa orðið sjálfskipaður í fyrsla og efsta sæti í kirkju þeirri, sem hann hafði skapað eða gert svo mikið fyrir. En það fór ekki svo. Páll, liinn mikli foringi, hinn óhvikuli leiðtogi, hinn ósigrandi stríðsmaður, liinn gnæf- andi kóloss, hann hlaut ekki æðsta sæti i kirkjunni. Það hlaut hinn maðurinn, sem mynd er af á bronsskildinum, Símon Pétur. Mvnd hans langar mig til að revna að draga síðar.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.