Kirkjuritið - 01.03.1941, Qupperneq 38
116
Vigfús Guðmundsson:
Marz.
6 áln., en í útbrotum 3% al. Gluggar 6 alls — bilaðir — 1 al. dönsk
á breidd, 1 al. 8 þml. á hæð. Mestöll er kirkjan fúin, rétt komin
að hruni og ekki embættisfær („over alt næsten forfalden Raaden
og ubrugelig til Gudstieneste“). Kirkjunni til aðgerðar áætla skoð-
unarmenn: 30 tylftir Gullandsborð á þak kórs og kirkju, 30
tylftir sömu borð í gaflþilin bæði, 2 tylftir trjáa, 20 álna, í sperrur,
stafi, aurslái o. fl. 6 gluggar 1% X 1 al., 8600 nagla 5 þumlunga,
6 tunnur tjara, 100 áln. vaðmáls — er kosti 5 fiska alin. Þetta
álíta skoðunarmenn hið minsta, er þurfi t i viðbótar þvi efni, er
fáist úr kirkjunni. — Liðugu ári áður (26/8 1747) hafði Pingel
fyrirskipað Oddi Hjaltalin sýslumanni að kveðja 6 menn til skoð-
unar Bessastaðakirkju. Óvíst er, hvort sú skoðun var framkvæmd.
Hitt er víst, að amtmaður vildi ekki eiga neitt við torfkirkjubygg-
ingu á Bessastöðum.
Á þessu ári gerist það, að sonur Pauls Beyers landfógeta ritar
bréf til stiftamtmanns (24/2). Getur hann þess, að faðir sinn (er
var á Bessastöðum 1706—’16), hafi gert á sinn kostnað jarðhús
undir kirkjunni á Bessastöðum, til „Zirat“ (prýði) fyrir kirkj-
una og eft rkomandi fógeta, sem grafhýsi fyrir þá. Sjálfur liefði
faðir sinn látið jarðsetja þar lík barns sins. Nú væri grafhýsið
ekki aðeins notað til geymslu og fylt með dóti, heldur væri líka
búið að taka líkiö þaðan. Eftir það vildi stiftamtmaður fá að vita
það hjá amtmanni, hvernig þessu sé háttað og hver liafi leyft það.
(Svar vantar).
1750. Enn kvartar Pingel um það, að kirkjan sé ekki embættis-
fær. Sjóð kirkjunnar segir hann vera 10 rd. 19 sk., en telur, að
mikið fé og efnivið vanti til aðgerðar. Konungur leyfði þá all-
mikið lán úr sjóði sínum (284 rd.) gegn greiðslu þar upp í frá
kirkjum landsins, og sama dag, 18. apr. 1750, er gefið út skipunar-
bréf um gamla 5% skattinn, enn á ný. Gekk nú svo greitt að inn-
heimta skattinn í þetta sinn, að á næsta ári þar á eftir hrutu
til Bessastaðakirkju frá 194 kirkju í Skálholtsbiskupsdæmi 202
rd. 25 sk., og vantaði þá ekki þaðan nema 31 sk. Þá kom líka frá
76 kirkjum í Hólabiskupsdæmi 91 rd. = 293 rd. 25 sk., og jafn-
gilti það 57,38 hundruðum — eða 14467 kr., ef miðað er við kýr-
verð í verðlagsskrá Gbrs. 1939—’40.
Fyrir þetta fé voru sendar til Bessastaðakirkju 60 tylftir af borð-
um. Aðgerðin dróst eigi að síður, og lá viðurinn úti til skemda
í 2—3 ár. — Svona var áhuginn ríkur og framkvæmdin röggsörn,
þá sem oftar. Sennilega hafa skifti forráðamanna á Bessastöðum
valdið nokkuru um dráttinn, með því að Pingel amtmaður mun
hafa horfið frá þvi embætti 1750.
1751. Vísitazía Ólafs biskups Gíslasonar sýnir, að enn er sama