Kirkjuritið - 01.03.1941, Blaðsíða 41
Kirkjuritið.
Innlendar fréttir.
119
dæmi. Laun Skálholtsbiskups er 10000 kr., en Húlabiskups 9000 kr.
~~ Lögin koma til framkvæmda við næstu biskupsskipti eða þeg-
ar núverandi biskup veitir samþykki sitt til þess. Skal þá kjósa
Hólabiskup, en núverandi biskup verður Skálholtsbiskup.
í aths. er frá þvi skýrt, að Skálholtsbiskupsdæmi verður 14
Prófastsdæmi með um 84334 ibúum, en Hólabiskupsdæmi 7 pró-
lastsdæmi með um 35930 íbúum.
III. Þriðja frumvarpið er um breyting á lögunum um skipun
Prestakalla. Er þar svo mælt fyrir, að þegar prestakall losnar,
skuli reyna að kalla prest án kosningar. Skal prófastur kalla
saman sóknarnefndir prestakallsins, og verði þar samkomulag um
að kalla ákveðinn prest, skal bera það undir safnaðarfundi. Verði
dllagan samþykt á öllum fundunum og fáist samþykki prestsins,
I®r hann veitingu. — Takist ekki köllun, skal kjósa eins og nú,
en þó með þeim mun, að kosning á löglega boðuðum kjörfund-
um ræður ein úrslitum þannig, að sá, er fær flest atkvæði, fær
veitingu. Nokkurar smærri breytingar eru líka, um kærufresti o. s.
Ivv- — Breytingin miðar að því að reyna að draga úr áróðri
Þeim og kosningaæsingum, sem hafa oft átt sér stað, og á hinn
bóginn að tryggja rétt safnaðanna, ef kosið er á annað borð, svo
a<5 þar komi ekki upp nýtt óánægjuefni.
Minningarguðsþjónustur
hafa verið haldnar undanfarið í ýmsum kirkjum vegna láls ís-
lenzkra sjómanna af völdum bafs og striðs. Hafa þær verið mjög
hátíðlegar, og fjöbnenni sótt þangað.
Sumardvöl kaupstaðarbarna í sveit.
Lndirbúningur er þegar hafinn að þvi að koma i sveit sem flest-
uni börnum úr þeim kaupstöðum, er mest stríðshætta vofir yfir
Hefir biskup landsins sérstaklega heitið á presta að ljá þessu máli
lið.
Dr. theol. Eiríkur Albertsson
Hytur nú erindi fyrir stúdentum guðfræðideildar um frumkristn-
*na. Eru þau framhald erinda þeirra, sem dr. Eiríkur flutti í
deildinni síðastl. vetur.
Sunnudagaskóli guðfræðideildar.
Hftir áramótin settu kennarar og nemendur guðfræðideildar á
stofn sunnudagaskóla fyrir börn í Háskólakapellunni, og er hann
nieð því sniði, sem gjört er ráð fyrir í helgisiðabókinni nýju.
Skólinn er ágætlega sóttur og öllum hlutaðeigendum til mikillar
ánægju.