Kirkjuritið - 01.06.1946, Side 8

Kirkjuritið - 01.06.1946, Side 8
190 Ragnar Benediktsson: Júní-Júli. ir Andans megi koma æ betur og betur í ljós á akur- lendi kirkjunnar, sem víða er í órækt og vanhirðu, sök- um deyfðar og áhugaleysis. Vér skulum því á þessari dýrlegu bátíð stuðla að því, liver í sínum verkahring, að kirkjan, hin sanna brúður Jesú Krists, megi verða oss eins og ástrik móðir, sem vér liöfum áreiðanlega öll sem börn flúið til og sólt til hennar styrk og huggun i hörmum, að vér megum eins leita til liennar, þegar í nauðirnar rekur og erfið- leikarnir sækja oss heim. Þótt líf vort manna í heild sé nú í dag á þessum yndislega og sólfagra hvítasunnudegi undur fjarri því dýrlega hugsjónatakmarki, sem höfundur kristinnar kirkju ætlaði oss að ná, þá megum vér eigi að síður ekki láta oss það úr minni liða, hvílíkum mætti og afli kristna trúin hefir blásið í brjóst þeim, sem kosið hafa Jesú Krist sér að leiðarljósi. Og vér meguin heldur al- drei gleyma, live mannlífið yrði sælt og fagurt, ef livíta- sunnuandinn næði að umskapa hjörtu manna, ef mann- kynið ætti raunverulega þann frið, sem Jesús talar um, fi’iðinn, sem ekki er vopnaður friður eins og nú, heldur er sproltinn af samfélaginu við hinn krossfesta og upp- risna drottin, þvi samfélagi friðarins, sem mennirnir rufu. En óðum nmn birta af degi fyrir logageislum bvíta- sunnunnar Vér skulum því biðja þess, að friðarríki .Tesú Krists spenni um allan hnöttinn, að Guðs ríki stofnist á þessari jörð, að aftur megi birta og verða dagrenning eftir hina löngu nótt böls og harma, tára og trega i lífi vestrænna þjóða. Heimurinn vildi forðum ekki taka á móti gjöf Andans alveg eins og enn í dag. Hann var þá staddur í myrkri, andlega talað, eins og raunar nú i dag, þrátt fyrir margvíslegar framfarir á hinu efnis- lega sviði. Ég fæ ekki nú í dag séð kristindóminn birt- ast i veröldinni eða ábrif Andans, því að meðan hatrið rikir, verður alltaf stríð.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.