Kirkjuritið - 01.06.1946, Blaðsíða 57
Kirkjuritið.
Prestastefnan.
239
tiátiðardagur íslendinga, tekinn i tölu helgidaga þjóðkirkjunnar,
og áð sérstakt hátiðarritúal yrði samið fyrir þennan dag.
Ýmsar kveðjur voru sendar, m. a. til kirkjumálaráðherra,
rektors Menntaskólans og kennaraþings íslands.
Um kl. 11 f. h. sleit hiskup prestastefnúnni með árnaðar- og
tivatningarorðum til prestanna. Hvatti liann í Ilrottins nafni til
nýrra átaka í starfi fyrir œskulýðinn og þannig fyrir heild þjóð-
arinnar. Síðan var gengið inn í kapelluna, og þar báðu biskup og
prestar bænar saman að skilnaði. Var sungið að endingu sálm-
versið: „Son Guðs ertu með sanni“.
Þegar að prestastefnunni iokinni fóru prestarnir með biskup
i fararbroddi lil listasafns Einars Jónssonar og sáu Kristsmynd
hans, hið fegursta listaverk, er mun verða krislni íslands til
blessunar um aldur.
Þaðan var farið til Þingvalla i boði bæjarstjórnar Reykja-
vikur og setin þar liin ágætasta veizla. Borgarstjóri .Bjarni Bene-
diktsson ávarpaði prestana og fór hlýjum viðurkenningarorð-
úni um starf íslenzkrar prestastéttar bæði fyrr og síðar. Biskup
þakkaði fyrir hönd prestanna. Eftir veizluna gengu prestar um
Þingvöll, og flutti séra Guðmundur Einarsson prófastur erindi
>iin staðinn.
Um kvöldið sátu prestar boð hjá biskupshjónunum við góðan
fagnað og ræðuhöld. Var þá tekin mynd sú, cr fylgir hér í
i'itinu.