Kirkjuritið - 01.06.1946, Blaðsíða 27
Kirkjuritið. Leiðtogar stórþjóðanna —.
209
lætinu“, skiptir minnstu máli, en sá sleppur ekki við
afleiðingarnar, sem brýtur í l)ág við liið eilífa lögmál
þess, sem vér hljótum að kalla „hið góða“.
Oft liefir það komið fyrir i sögu mannkynsins, að
rangsleitni, siðferðileg hnignun og guðleysi hefir leitl
vfir þjóðirnar ógurlegar þjánngar. Hefir þá farið fyrir
þeim líkt og týnda syninum i dæmisögunni, að í neyð
sinni l)afa ])ær minnzt föðurhúsanna. Hafa þá leiðtog-
arnir stundum gengið fram fyrir lýðinn og heim allan
(>g játað syndir sínar og þjóðarinnar. Um þetta lesum
við í sögu ísraelsmanna t. d., og skal vikið að þvi síðar.
En nú eru það leiðtogar tveggja lieimsins voldugustu
þjóða, sem gengið hafa fram fyrir lýðinn, fram fyrir
drottin alls réttlætis og fram fyrir lieim allan, og
játað þeirra miklu og ógurlega afleiðingaríku syndir.
Verði slíkl komandi kynslóðum til eilífrar viðvörunar!
Þessir tveir heimskunnu leiðtogar eru þeir Roosevelt,
forseli Bandaríkjanna, og' Churchill, forsætisráðherra
Englands. Um áramótin 1941—42 flutti Churchill ræðu
í Wasliington og sagði þá, að ef þessi tvö heimsveldi
— Bandaríkin og Stóra-Bretland — hefðu staðið sam-
an um það að varðveita heimsfriðinn, þá hefði mátt
afstýra þessum blóðuga og ógilrlega hildarleik, sem nú
hefir búið flestum þjóðum heimsins littbærilegar kvalir.
Hvílík játning frammi fyrir öllum heiminum! Hví-
lík ógurleg synd! Hvilík léttúð og vanræksla! Léttúð-
ugir og ágjarnir rnenn í Bandaríkjunum vildu ekki -þátt-
töku þjóðarinnar í þjóðabandalaginu. Rangsleitnin hélt
framvegis velli í viðskiptum þjóðanna, og sannarlega var
þeim svo miskunnarlaust kastað i helvíti stríðsógnanna.
Þannig er lífið: Réttlátt og miskunnarlaust gagnvart
i'angsleitninni. Þótt helvíti miðalda hjátrúar sé þurrkað
111, þá varir þó tízkuhelvíti rangsleitninnar.
Roosevelt hefir sagt: „Að aðeins réttlætið geli upphaf-
]ð þjóðirnar, hin kristilega hugsjón og hið kristilega
siðgæði verði að vera grundvöllur þess nýja heims, er