Kirkjuritið - 01.06.1946, Page 48

Kirkjuritið - 01.06.1946, Page 48
230 Prestastefnan. Júni-Júlí. 4 Húsaleigustyrkur þeirra presta, sem eigi lrafa lnisnæði frá því opinbera. 5. HúsnæSi biskups. Skal nú nánar vikið að þessum atriðum hverju um sig. 1. Áveðið hefir verið að greiða prestum embættiskostnað 500—700 krónur, með verðlagsuppbót á sama hátt og verið hef- ir undanfarin ár. 2. Lagt liefir verið fram á síðasta Alþnigi frumvarp um hýs- ingu prestssetra og afgjald af prestsseturshúsum, er ég vona að afgreitt muni verða sem lög á næsta þingi. Frumvarp þetta iét ég semja í samráði við kirkjumálaráðherra og ráðuneytið og vænti ég þess, að það, sem þar er lagt til, megi yfirleitt teljast viðunandi og sanngjörn lausn þessara mála. Vænti ég að fá lækifæri síðar á prestastefnunni til þess að skýra ýður nánar frá efni þess. 3. Ég' hefi góða von um, að kirkjumálastjórnin muni fallast á, að í stað árlegs mats skattanefnda á afgjaldi af prestssetrum og heimatekjum presta, sem er í alla staði óhentugt og dýrt í fram- kvæmd og auk þess þvert ofan í anda ábúðarlaganna, muni verða fallizt á að láta í þess stað fram fara almennt brauðamat á land- inu, samkvæmt lögum þar um. 4. Kirkjustjórnin hefir fallizt á að greiða húsnæðislausum prestum árlegan húsaleigustyrk á sama hátt og' verið hefir und- anfarin ár. 5. Loks hefir kirkjustjórnin ákveðið, að liúseign ríkisins. Gimli í Reykjavík, verði tekin fyrir biskupssetur fyrst um sinn og er nú verið að framkvæma nauðsynlegar aðgerðir á liúsinu i þessu skyni. 1 þessu sambandi vil ég ennfremur geta þess, að sett hefir verið ný gjaldskrá uni aukaverk sóknarpresta, þar sem tekið ei' nokkurt tillit til núverandi dýrtíðar í landinu og gjöldin ákveðin með vísitöluálagi. Söngmálastjóri þjóðkirkjunnar, Sigurður E. Birkis, hefir starfað með svipuðum hætti og undanfarin ár að eflingu kirkju- söngsins í landinu. Hefir hann á tímabilinu frá 1. júni 1945 til jafnlengdar 1940 stofnað eða séð um stofnun 18 kirkjukóra víðsvegar um landið. Alls eru því starfandi nú 84 kirkjukórar hér á landi. Ennfrem- ur hefir hann haldið söngnámskeið með 12 kirkjukórum. Tuttugu og fimm kirkjukórar héldu hljómleika á árinu, yfir- leitt er mjög góð aðsókn og' undirtektir. Sex kirkjuhljóðfæri voru keypt á árinu.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.