Kirkjuritið - 01.06.1946, Page 52
234
Prestastefnan.
Júní-Júli.
Jafriframt sat ég fund Hjálpars-tofminar hinna evanþelisku
kirkna í Evrópn.
Þess má geta, að í sambandi við biskupafundinn fór fram mjog
liátíðleg minningarguðsþjónusta um danska prestinn og þjóðar-
betjuna Kaj Munk.
Nordisk Ökumenisk Institut liélt þing í Lejondal við Stokk-
liólm dagana 29,—31. janúar s.l.
Var íslenzku kirkjunni boðið að senda þrjá fulltrúa á þing
þetta. Mættu þar sem fulltrúar prestarnir séra Ingólfur Ástmars-
son og séra Guðmundur Guðmundsson, er báðir voru staddir
i Svíþjóð við framhaldsnám.
Þá var hinn 28. og 29. maí s.l. haidið bátíðlegt 800 ára af-
mæli dómkirkjunnar í Lundi i Svíþjóð. Var mér boðið til bá-
tiðaliatda þessara, en því miður fékk ég því eigi við komið að
fara sökum annrikis. Hins vegar geri ég ráð fyrir að fara utan
á þessu sumri og sitja biskupafund Norðurlandabiskup'anna,
sem ákveðið er að lialda í sumar.
Þá vil ég að iokum minnast nokkurra merkisafmæla, er fyr-
verandi og núverandi prestar bafa átt á synodusárinu, svo að
inér sé kunnugt.
Séra Kristinn Danielsson, præp. bon, f. prestur að Útskálum,
varð 85 ára binn 18. febr. s.l.
Séra Magnús Bjarnarson præp. hon., f. prestur að Prestsbakka,
varð einnig 85 ára hinn 23. apríl s.l.
Séra Ófeigur Vigfússon, f. prestur og prófastur í Fellsmúla, átti
80 ára afmæli hinn 3. júlí f. árs.
Séra Sigurbjörn Á. Gislason, prestur að Elliheimilinu Grund,
varð 70 ára hinn 1. janúar s.l.
Séra Theódór Jónsson, f. prestur að Bægisá, varð 75 ára hinn
16. maí s.l.
Séra Þorsteinn Briem, prestur og prófastur á Akranesi, varð
00 ára hinn 3. júlí f. árs.
Séra Haraldur Jónasson, prestur og prófastur að Kolfreyju-
stað, varð 00 ára hinn 0. ágúst f. árs.
Séra I'riðrik A. Friðriksson, prófastur á Húsavík, varð fimmt-
ugur þann 17. júní.
Færi ég þeim öllum innilegar beillaóskir á þessum merku
timamótum á æfi þeirra og árna þeim allra heilla og blessun-
ar Guðs.
Að lokum vil ég geta þess, að i vetur kom hingað lieim aftur
cftir lang dvöl í Danmörku hinn ágæti prestaöldungur og æsku-