Kirkjuritið - 01.06.1946, Síða 64
246
Aðaífundur Prestafélags íslands. Júni-Júlí.
„Aðalfundur Prestafélags íslands 194(5 lýsir eindregnu fylgi
sínu við frumvarp tii laga um skipulag og liýsingu prestssetra,
er nú liggur fyrir Alþingi að tilhlutun kirkjumálaráðherra“.
Aðalmál fundarins var fermingarundirbúningurinn og sam-
hand lians við unglingafræðslu almennt. Fluttu þeir um málið
ýtarleg framsöguerindi, prófastarnir séra Guðbrandur Björns-
son og séra Jón Þorvarðsson. Ýmsir fleiri tóku til máls. Að
lokum var þessi tillaga borin upp og samþykkt með öllum
greiddum atkvæðum:
„Aðalfundur Prestafélags íslands, haldinn 19. júní 1946, lýs-
ir yfir því, að hann telur rétt, að ferming skuli framvegis, eins
og hingað til, fara fram á því ári, er barnið verður fullra 14 ára.
Fundurinn telur nauðsynlegt, að kirkjan fái íhlutunarrétt við
samningu námsskrár fyrirhugaðra unglingaskóla í landinu, og
samþykkir að kjósa 5 manna nefnd til að undirbúa málið, og
leiti hún samvinnu við fræðslumálastjórnina um að samræma
rámsskrá og fermingarundirbúning“.
í nefndina voru kosnir:
Séra Guðbrandur Björnsson prófastur,
séra Árni Sigurðsson frikirkjuprestur,
séra Jakob Jónsson,
séra Jón Guðnason og
séra Jón Þorvarðsson prófastur.
Séra Gísli Brynjólfsson flutti erindi um fræðslustarf presta í
fámennum prestaköllum og bar fram í lok máls síns þessa til-
lögu:
„Aðalfundur Prestafélags íslands 1946 telur eðlilegt og æski-
legt, að prestum í fámennum prestaköllum verði, án sérstakra
launa, falin unglingafræðsla í samvinnu við kennara cftir því,
sem við verður komið á hverjum stað“.
Málinu var vísað lil 3 manna millifundanefndar og í hana
kosnir:
Séra Helgi Konráðsson,
séra Gísli Brynjólfsson og
séra Björn Magnússon dósent.
Aðrar tiliögur, sem bornar voru upp á fundinum og sam-
þykktar, voru þessar:
„Aðalfundur Prestafélags íslands fagnar hinni nýju löggjöf
Alþingis um almennar tryggingar og telur hana munu marka
blessunarrík tímamót í sögu þjóðarinnar“.
„Aðalfundur Prestafélags Islands lýsir yfir því, að hann tel-
ur kröfu Islendinga um afhendingu allra islenzkra handrita,
skjala og forngripa úr söfnum í Danmörku sjálfsagt réttlætis-