Kirkjuritið - 01.04.1947, Blaðsíða 23
Kirkjuritið.
Biblíumyndir.
109
og dauði. En hver veit nema mannkyninu veiti betur en
Þór í viðureigninni við Elli gömlu og hennar liyski. Og vist
er um það, að framfarirnar eru dásamlegar, — ef. Ef
maðurinn sneri þeim ekki yfirleitt sér til ógœfu. En það
hefir liann gert.
Og það stafar al' því, að vandamálin i manninum eru
óleyst. Maðurinn tekst á við náttúruna í kring um sig, en
gerir sjálfan sig að illa uppöldum, óþægum snáða, sem
fer sér að voða við bvert fótmál.
Og þess vegna er nútímakynslóðin sennilega miklu fá-
tækari í raun og veru en þær fyrri kynslóðir, sem að! vísu
urðu ofl undir fyrir náttúrunni í kring, en voru sterkar
og auðugar hið innra.
Biblían í myndum sýnir oss þetta greinilega: Hinn
innri maður skiptir máli, og Biblían er öruggur leiðsögu-
maður. Ytri sigrar eru dásamlegir, ef þeim er snúið lil
góðs, snúið til velferðar og aukinnar gæfu allra liér á
þessari jörð. En þeir eru jafn bættulegir, ef þeim er snú-
ið öfugt, því að þá auka framfarirnar aðeins möguleika
manna til þess að gera hverir öðrum illt. Þá segir bver
kynslóðin við þá næstu eins og Rebabeam: „Litli fingur
minn er gildari en lendar föður míns.------Faðir minn
refsaði yður með keyrum, en ég mun refsa yður með
gaddasvipum".
í mörgu liafa mennirnir hagnýtt sigra sína sér til gæfu
og gengis. En í því, sem úr sker, hefir verr farið.
Biblían öll gefur skýrt svar við spurningunni um það,
livernig vandamál mannlegs lífs verði leyst. Hún gefur
svarið í fjölda mynda.
Þrjú svör eru i þrem fyrstu bænum í Faðir vor.
Þjónið liver öðrum i kærleika, er einnig gott og gilt
svar.
Berið hvers annars byrðar og uppfyllið þannig lögmál
Krists, segir Páll postuli, og það eitt væri nóg.
Leitið fyrst Guðs ríkis-------og þá mun allt annað