Kirkjuritið - 01.04.1950, Side 9

Kirkjuritið - 01.04.1950, Side 9
SUMARIÐ í NÁND 7? sanna kirkja Krists hlýtur að gjöra það alstaðar og æfin- lega. En öðru máli er að gegna um hina sýnilegu kirkju miljónanna um lönd og álfur. Hún hefir víða brugðizt því að halda á lofti hreinu fagnaðarerindi Krists á skelfingar- tíð. Vonbrigði og kjarkleysi hafa veikt hana. Hún hefir bent á viðurstyggð eyðingarinnar hvarvetna sem voldug- ustu og áþreifanlegustu sönnun þess, hve mennirnir séu vondir í innsta eðli sínu og alls vanmáttugir þess að bæta ráð sitt. Hún hefir lagt megináherzlu á að sýna syndugum mönnum synd þeirra eins og þeir væru alblindir á hana og fullvissa þá um þróttleysi þeirra, sem þeir hafa sjálfir fundið við hvert fótmál. Þó reisir það engan glæpamann við að prédika honum, að hann sé djöfulsins barn, heldur er það aumasti og áhrifaminnsti boðskapur til góðs, sem honum verður fluttur. Jafnframt hefir kirkjan boðað hjálpræði þeim einum til handa, sem náð Guðs útvelur úr glötunarhaugnum. En skilyrðið til þess að verða henn- ar aðnjótandi sé það, að menn trúi „friðþægingarkenn- ingunni“ eins og kirkjuþing hafa boðað hana með sam- þykktum sínum og játningum og einstakir menn túlkað. Að dæmi Faríseanna hefir verið „ónýtt boð Guðs til þess að geta haldið fram erfikenningu manna.“ Gleði og æsku- kraft hefir skort. Kirkjuskipið hefir verið líkara björgunar- bát, sem hefir týnt upp fáeina úr drukknandi manngrúa í æðandi hafróti, heldur en glæstum knerri, skipuðum öll- um þjóðum, er ristir heimshöfin á för til hins fyrirheitna lands. ★ Jafnvel göfugustu og bezt menntu þjóðir heims, sem forystuskylda hvílir á öðrum til blessunar, hafa ekki getað varizt eymdinni og volæðinu. I stað gleðiboðskapar Jesú Krists hafa kirkjur þeirra flutt mannasetningar, sem þær virðast telja æðstar alls og reglu og mælisnúru á það, hvað sé sannur kristindómur. Hingað til lands berast einnig óm- arnir frá þeirri kenningu.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.