Kirkjuritið - 01.04.1950, Side 13
SUMARIÐ í NÁND
81
Og svo er það einnig í heimalöndum 'kristninnar. Eigi kirkj-
an í raun og veru að standa sterk og sameinuð að hlutverki
sínu í heiminum, þá verður endurvakning hins upphaflega
kristindóms — kristindóms Fjallræðunnar að fara fram
fiieð þungum þyti vorsins, heilögum anda um lönd og
Þjóðir.
Frammi fyrir ógnum og hættum verður boðskapurinn
niáttugastur: Takið sinnaskiptum, því að Guðs ríki er í
nánd. Svo var það, er Jóhannes skírari hóf kenning sína.
Hann sá þjóð sína hrekja ofan gljúfragöng og dynjandi
fossinn hið neðra. Dauðinn beið, ef hún reif sig ekki upp
úr til lands. Það voru seinustu forvöð. Hann sá öxina lagða
að rót trjánna. Eftir andartak yrði hún hafin á loft og
hvert tré, sem ekki bæri góðan ávöxt, upp höggvið og i
eld kastað. Og Jesús sá veldi hins illa æða eins og hafrót.
En hann boðaði engu að síður: Guðs ríki er komið í nánd.
Hverfið aftur til þess. Já, Guðs ríki er þegar komið. Fjall-
ræðan er stjórnarskrá þess og Kristur sjálfur konungur.
Þegar hann segir: Mitt ríki er ekki af þessum heimi, á hann
ekki við það, að það sé aðeins himneskt, heldur að ríki það,
sem hann stofnar hér á jörð, sé himneskrar ættar eins og
mennirnir eru Guðs börn. Til þess að minna þá á, að þeir
séu bræður hans, nefnir hann sig mannssoninn. Hann er
fyrimynd þeirra og frelsari, mark og mið. Og í krafti
Þess segir hann í Fjallræðunni: Verið fullkomnir eins og
faðir yðar á himnum er fullkominn. Jafnvel þegar öldur
dauðans rísa hæst gegn krossi hans, boðar hann skýrast
°g með mestum mætti: Guð er kærleikur. Komið til mín.
Sumar upprisunnar og lífsins var í nánd.
★
Ef kristin kirkja um víða veröld vaknar nú til skyldu
sinnar og sameinast gegn stríðshatri og hervæðing — ef
hún lætur það sannast í lífi sínu og starfi, að hún er hlýðin
drottni sínum, svo að