Kirkjuritið - 01.04.1950, Qupperneq 14
82
KIRKJUROTÐ
í hverju landi
hans orð og andi
er allt lifandi að semja frið,
þá er sumar Guðs ríkis í nánd.
Ótti og hugleysi má ekki gagntaka kristna menn. Þeir
mega ekki vera eins og bátshöfnin forðum á Genesaret,
sem hrópaði örvæntingarfull í storminum og öldurótinu:
Meistari, hirðir þú ekki um, að vér förumst? Þá mundi
hann enn sem fyrr mæla þungum ávítunarorðum: Hvernig
má það vera, að þér hafið enn enga trú?
Vaka ekki föðuraugu Guðs yfir þessari jörð? Elskaði
hann ,ekki svo þennan heim okkar, að hann gaf son sinn
honum til lífs? Er ekki ríki hans gróðursett þannig í
mannshjörtunum, að mannkynið fær aldrei deytt sjálft sig
að fullu og öllu? Er ekki kærleikur hans sterkasta afl til-
verunnar?
Hef jið því upp höfuð yðar, kristnir menn. Lausn yðar er
í nánd, ef ekki þrýtur trúna á Guð. Verið allir eitt í verki
og sannleika. Leggið við lífið hver og einn, að stríð megi
verða stöðvuð til endimarka jarðar.
Og þú Islands kirkja, lát einnig heyrast þína rödd. Ver
þú einn þátturinn í heimssamtökunum að friði. Ber fram
merki Krists, Faðir vors, Fjallræðunnar, upprisunnar, lífs-
ins, vorsins, kærleikans.
Og sjá:
Sumarið er í nánd.
Ásmundur Guðmundsson.