Kirkjuritið - 01.04.1950, Qupperneq 29
Hefir Jesús aldrei
verið til?
Erindi flutt
á Hóladaginn
14. ágúst 1949.
Tilefni þessa erindis eru ummæli í bók, sem út kom í
Reykjavík á síðastliðnu ári, og mikið var auglýst áður en
hún birtist almenningi. Ég á hér við bók próf. Níelsar
Dungals: Blekking og þekking. Tilgang þessarar bókar
vita allir, sem lesið hafa, sem sé niðurrif kristinnar trúar.
Á bls. 419, neðarlega, standa þessi orð:
„Sá Jesús frá Nazaret, sem kom opinberlega fram
sem Messías, sem prédikaði siðfræði Guðsríkis, sem
stofnaði Guðsríki á jörðunni og dó til að innsigla
starf sitt með heilögu blóði, hefir áldrei verið til“
Að visu eru þessi orð tilvitnun úr riti þýzks vísinda-
manns, en höf. bókarinnar, sem hér ræðir um, virðist
gera þessa skoðun að eigin skoðun sinni: Jesús frá Naz-
aret hefir aldrei verið til.
Þetta væru vissulega mikil tíðindi, ef sönn væru. Og
það væri sannarlega mikilsvert fyrir íslenzka vísinda-
mennsku, og álit hennar út á við, að eiga þann mennta-
mann, sem bæði hefir þekkingu, vitsmuni, hreinskilni og
einurð til að ganga fram fyrir skjöldu og frelsa mann-
kynið frá þessari stórkostlegu blekkingu, sem sagan hefir
að geyma, trúnni á Jesúm Krist, ekki aðeins sem frels-
ara heimsins, heldur sýna fram á það, með rökum, að allt,
sem um hann hefir verið kennt um 19 aldir, hafi verið