Kirkjuritið - 01.04.1950, Blaðsíða 33
HEFIR JESÚS ALDREI VERIÐ TIL?
101
in, þó út i það skuli lítið farið. Það eru þréf Páls postula.
Allir vita, að hann gekk í söfnuðinn aðeins fáum árum
eftir dauða Jesú. Álitið er, að Páll hafi verið líflátinn um
svipað leyti og Pétur. Bréf hans eru þvi skrifuð allmörg-
Um árum fyrr en Markúsar guðspjall. Hann nefnir þar
vottfest atvik úr lífi Jesú, t. d. bæði í Gal. br. og sér-
staklega í 1. Kor. Hann hefir því haft frásagnir sínar frá
fyrstu hendi. Um þetta segir einn merkasti Biblíu-rann-
sóknarmaður síðari tíma: Ef einhver leitast við að fjar-
Imgja Jesúm úr sögimni, verður hann að byrja á því von-
lausa verki að sanna, að Pálsbréfin, sérstaklega Gal. og
!• Kor. séu falsanir.
Þá er að minnast á þá röksemd, að ekki sé sagt frá
atburðum guðspjallanna í samræmi við vitað tímatal,
sem aðrar sögurannsóknir hafi leitt í ljós. Okkar tíma-
tal er miðað við það, að Jesús sé fæddur árið 1. Á þá
Heródes að hafa verið konungur, en Kýreníus landstjóri
i Sýrlandi. Jesús á að hafa verið 30 ára þegar hann tók
skírn hjá Jóhannesi, starfað síðan í 3 ár og verið kross-
festur í landstjóratíð Pílatusar. En samkv. frásögn Lúk.
á Jóhannes skírari að hafa hafið starf sitt á 15. ríkis-
stjórnarári Tíberíusar keisara. Þessar staða- og tíma-
ákvarðanir eru samkv. Samstofna guðspj., sitt úr hverju.
En það skal strax játað, að við sagnfræðilegan saman-
burð ýmsra annarra heimilda, fá þær ekki staðizt. Og úr
þeirri staðreynd hafa gagnrýnendur og efasemdarmenn
reynt að gera sér mikinn mat. Við skulum því athuga,
hvaða hernaðarlega þýðingu þetta misræmi hefir.
Rómverjar, og með þeim margar hinar undirokuðu þjóð-
ir heimsins, töldu tímabil sitt frá byggingu Rómaborgar.
Jesús hefir því, að gömlum reikningi, verið fæddur árið
754 eftir byggingu Rómaborgar. En nú er það vitanlegt,
að Heródes konungur deyr árið 750. Ef það er rétt, sem
guðspjöllin halda fram, að Jesús sé fæddur á valdatíma
Heródesar, þá skakkar okkar tímataii um 4 ár. Stjörnu-
fræðingurinn Kepler reyndi árið 1606 að reikna út fæð-