Kirkjuritið - 01.04.1950, Side 56

Kirkjuritið - 01.04.1950, Side 56
124 KIRKJURITIÐ þeim því, að ef þau geri það, skuli þau vissulega deyja. Segir höggormurinn þeim nú, að ekki muni þau deyja, heldur stafi þetta bann af því, að Guð viti, að jafnskjótt sem þau eti af ávextinum, muni augu þeirra ljúkast upp og þau muni verða eins og Guð, að vita skyn ills og góðs. Skilja þau þá ekki, að það geti verið mikil synd að vilja þekkja greinarmun góðs og ills og eta af ávextinum. En af þessu verður Gyðingaguðinn bálreiður, rekur hina fyrstu foreldra út úr Paradís og bölvar jörðinni þeirra vegna: „Og Jahve Guð sagði: „Sjá, maðurinn er orðinn sem einn af oss, þar sem hann veit skyn góðs og ills. Aðeins að hann rétti nú ekki út hönd sína og taki einnig af lífsins tré og eti, og lifi eilíflega. Og hann rak manninn burt og setti Kerúbana fyrir austan Eden-garð og loga hins svip- anda sverðs, til að geyma vegarins að lífsins tré.“ Þetta er nú hið forna ævintýri úr barnæsku Gyðinga- þjóðarinnar, sem guðfræði sr. Sigurbjarnar er grundvöll- uð á. Samkvæmt því er Guði meinilla við, að mennimir þekki greinarmun góðs og ills, reyni að líkjast honum, eða vilji lifa eilíflega. Hann er eins og árvökull harð- stjóri, sem reynir að verja sérréttindi sín, en tekst það ekki, því að djöfullinn leikur á hann. Mennirnir mega eng- an vilja hafa, ekki einu sinni í því að líkjast Guði, heldur eiga þeir að hlýða í blindni. En hafi þeir nú ekki þekkt greinarmun góðs og ills áður en þeir átu eplið, við hvern hafði þá Guð að sakast, nema sjálfan sig, sem skapaði þá þannig? Ekki gátu mennirnir þá vitað, fyrr en eftir á, að þetta væri svona stór synd að vilja líkjast Guði. Þeir höfðu ekkert siðferðisskyn áður. Svo tekur djöfullinn við stjórninni, og Guð fær við ekkert ráðið, jafnvel þó að hann geri heiðarlegar til- raunir til að drekkja þorra mannkynsins og ala upp úrvals- fólk af kynstofni Nóa. Þegar Móse er með þessa útvöldu þjóð á ferð um eyðimörkina, er Guð svo sárgramur, að hann segir við Móse:

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.