Kirkjuritið - 01.04.1950, Blaðsíða 58

Kirkjuritið - 01.04.1950, Blaðsíða 58
126 KIRKJURITIÐ vegar engin vorkunn. Þeir ættu að skilja, að engin fram- bærileg ástæða er til fyrir því að trúa beri á fyrstu Móse- bók sem óskeikula sögulega heimild. Sá Guð, sem I. Mósebók talar um, er allt annar en Guð Jesú Krists. Það er guð reiðinnar, guð hinnar frumstæðu hræðslu og óþroskaðrar siðavitundar. Hinir kreddublindu bókstafstrúarmenn rugla þessum guðum alltaf saman í guðfræði sinni, unz úr verður fullkominn óskapnaður, en dýrka þó einkum guð reiðinnar. Þrátt fyrir það, geri ég varla ráð fyrir, að neinn þeirra mundi vilja senda sín eigin börn í eilífar kvalir, ef hann réði einhverju um, jafnvel þótt þau væru eitthvað brek- ótt og hefðu lítið komizt í kynni við heilagan anda eða „frelsazt" í söfnuði trúaðra. Svo blindir geta menn orðið í rétttrúnaðinum, að þeir ætla Guði sínum miklu verri fólskuverk en þeim mundi sjálfum koma til hugar að fremja. Það hefir oft verið bent á, að trúin hljóti ávallt að ná út fyrir það, sem skilningurinn nær, sérhver trúarhugsun hljóti ávallt að enda í mystik. Þetta er í sjálfu sér rétt. Auðvitað nær skilningur mannanna ekki langt í því að útskýra leyndardóm alheimsins. En þar með er ekki sagt, að nokkur ástæða sé fyrir hendi að trúa beri því, sem hneykslar skynsemi- og réttlætiskennd vora, aðeins af því, að einhverjir hafa trúað því á liðnum öldum. Vér vitum, að villan hefir verið svo mörg í hugsanalífi liðinna kyn- slóða, að engu meiri ástæða er til að trúa á óskeikulleik þeirra í trúarefnum en t. d. í náttúruvísindum. Hér verður hver kynslóð að hafa það, sem henni sannast þykir. Ann- að er ekki hægt, ef trúin á ekki að verða dauð kredda eða hræsni. Engin lífsskoðun getur orðið undirstaða sannrar menn- ingar, nema hún sé byggð upp af hugsun og skynsemi. All- ar raunverulegar framfarir eiga rót sína að rekja til þessa. Því er heldur eigi hægt að fyrirlíta skynsemina í trúar-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.