Kirkjuritið - 01.04.1950, Blaðsíða 72
Samtíningur
innan lands og utan.
1 Bandaríkjum N. A. eru íbúar taldir vera kringum 148
milj. Af þeim eru rúmlega helmingur, eða 77 miljónir,
skráðir meðlimir einhverrar kirkjudeildar. 1 árbók amer-
isku kirknanna 1949 er þetta talin vera hæsta meðlima-
tala, sem kirkjurnar hafa nokkru sinni haft. Af þessu
fólki eru 46 milj. mótmælendur, 25 milj. rómv.-kaþ., 5
milj. Gyðingar og 1 milj. grísk-kaþólskir. Talið er, að 30 c/o
af meðlimum trúfélaganna séu nokkurn veginn stöðugir
kirkjugestir. — Það mundi þykja allgóð kirkjusókn í flest-
um söfnuðum hér á landi.
★
„Það er meiri þörf á að bæta prestana heldur en fækka
þeim,“ sagði sr. Björn í Laufási( faðir Þórhalls biskups)
þegar tíðrætt var um prestafækkun.
★
Á árinu 1949 sóttu næstum eitt þúsund stúdentar um
innritun til guðfræðináms í Englandi. Þetta eru næstum
því helmingi fleiri heldur en kirkjan þarf, því að þar í
landi er þörf fyrir ca 600 nýja presta á ári hverju. Guð-
fræðinemum í Bretlandi hefur farið fjölgandi síðan á stríðs-
árunum. Merki um það sama virðast vera sjáanleg hér á
landi. 1 síðasta hefti Kirkjuritsins voru taldir upp 32, sem
nú eru innritaðir í Guðfræðideild Háskólans.
★
Blöðin sögðu frá því, og töldu tíðindum sæta, að í byrjun
kosningabaráttunnar gengu foringjar stjómmálaflokkanna