Kirkjuritið - 01.04.1950, Síða 73
SAMTÍNINGUR
141
brezku í Guðs hús. Þar krupu þeir hlið við hlið Attlee,
Churchill og Davies og gerðu bæn sína. Ekki er talið að
Þetta hafi vakið undrun í Englandi, en líklega þætti það
hér saga til næsta bæjar, ef formenn pólitískra flokka okk-
ar íslendinga færu að feta í fótspor brezkra stjórnmála-
leiðtoga á þessu sviði.
★
Úr Kirkjublaði fyrir 40 árum: „Langkunnugastur mað-
Ur um endilangt Island er ögmundur skólastjóri Sigurðs-
s°n í Hafnarfirði. Hann hefir sagt mér, að góðir og vitrir
útlendingar, sem hér ferðast, telji það eitt hið átakanleg-
asta og ljótasta siðleysismark á hinni íslenzku þjóð, hve
úla sé hirt um grafreitina víða hvar.“ Talsvert hefir þetta
batnað á síðustu 40 árum. En mörgu er enn ábótavant.
Vinnum að því öll, að allir kirkjugarðar verði fagrir og
friðaðir reitir, þar sem minningu hinna látnu er sómi og
lotning sýnd.
★
Sunnudaginn 8. jan. s. 1. steig leikmaður í fyrsta sinn í
stólinn í Pálskirkjunni í London. Það var hinn kunni brezki
stjórnmálamaður sir Stafford Cripps fjármálaráðherra.
bíonum hafði verið boðið að prédika, og hann þáði boðið.
Ekki kann ég að rekja ræðu hans, en hann endaði hana
eitthvað á þessa leið: „Það er ekkert mikilsverðara í heim-
lnum i dag heldur en þetta: að mennirnir geti, bæði í einka-
bfi sínu og opinberu lífi, tileinkað sér fyrirmynd Krists og
bfað eftir lífsreglum hans. Þetta er erfitt. Já, það kann að
Vlrðast ókleift, en samt trúi ég því, að framtíð mannkyns-
lns sé nú undir því komin, að hin kristnu sjónarmið verði
rikjandi í lífi þjóðanna og í samskiptum þeirra innbyrðis.“
★
>,Rangárvallaprófastsdæmi hefir verið kirkjuræknasta
hérað landsins, að því er um verður dæmt af ytri sýn, hafa
°g valizt þangað áhugasamir prestar," segir Þórhallur