Kirkjuritið - 01.04.1950, Page 77

Kirkjuritið - 01.04.1950, Page 77
t Rödd Guðs. (Lausleg endursögn úr sænsku). Það var um vetur. Ég gekk krókóttan skógarstíg, sem ég hafði víst aldrei gengið áður. Samt sem áður kom hann mér kunnuglega fyrir sjónir. Mér fannst ég kannast við hvern krók og hverja beygju. Skyldi ég annars hafa einhvern tíma 9engið þennan stíg áður? Það hefir þá verið að sumarlagi fyrir mörgum árum. — Það var kalt í veðri, en kyrrt. Heið- hjartur, fagur vetrardagur. Þegar ég hafði gengið all-langa ieið, bar mig að lágum skógarkofa, er stóð þar í bjarkaskjóli. ryrst áleit ég, að kofinn væri mannlaus, en svo sá ég brátt, að lir reykháfnum rauk. Þar hlaut því einhver að búa. Já, alveg rétt. Hér býr hann Eiríkur gamli í kofanum. Auðvitað. ^9 leit inn. Hann sat á bekk framan við eldstæðið. Hrukkótt ^ndlit. Ógreitt hár. En svipurinn bjartur og góðlegur. „Jæja, SV0 uienn eru þá hér á skemmtigöngu," sagði hann íbygg- 'nn> þegar við höfðum heilsazt. „Ég lagði leið mína af til- V|Uun hingað," svaraði ég. „Og svo leiztu inn til gamla ^annsins, mín.“ Hún þúaði mig, þó að við hefðum aldrei fyr sézt. Mér lá við að móðgast. „Ég rakst hingað af tiiviljun,“ Sa9ði ég afsakandi. En Eiríkur gamli hristi höfuðið og sagði 11163 alvöruþunga: „Nei, það skeður ekkert af tilviljun. Það er einhver tilgangur með flestu, — jú, öllu.“ „Ekki öllu,“ andmæiti ég. „Jú, það er eitthvað umhverfis okkur eða innra 11163 okkur, sem stýrir gangi vorum. Stundum eitthvað gott, en stundum eitthvað vont. Ólík öfl berjast um okkur,“ mælti 9amli maðurinn. „Máske,“ skaut ég inn í. „Meinið er, að við 9efum þessu svo lítinn gaum,“ bætti Eiríkur við. „Við álpumst sv° off áfram í blindni. Til allrar óhamingju gefum við okk- Ur ekki tómstund til að hlusta eftir röddunum, sem tala í Sa|unni. Ef við gjörðum það, færi margt öðruvísi en það 9jörir. „Farðu í þessa átt,“ segir ein röddin. „Komdu hingað," Se9ir önnur. Þannig hefst barátta innra með okkur og úrslitin ern undir því komin, hvort við hlýðum rödd vonzkunnar eða 9°ðleikans.“ „Samvizku sinni á sérhver að hlýða," svaraði ég.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.