Kirkjuritið - 01.02.1954, Side 22
68
KIRKJURITIÐ
í tvö ár, en varð því næst biskup í Lundi og andaðist af afleið-
ingum drykkjuskapar. Þessir trúboðsbiskupar störfuðu allir á
Suðurlandi. En á Norðurlandi dvaldist Bjarnharður hinn sax-
lenzki í eina tvo áratugi. Hann hafði tekið vígslu suður í Róm
og starfaði sem trúboðsbiskup í Noregi, en flúði til íslands
vegna ágreinings erkibiskupsins og Haralds konungs harðráða.
Eftir íslandsdvöl sína varð hann fyrst biskup í Selju og síðar í
Björgvin. Auk þessarra ofangreindra trúboðsbiskupa voru hér
á ferð einhverjir dularfullir útlendingar, sem álitið er að hafi
verið ermskir og fylgjandi sértrúarflokki Pálíkíana.
Þessi upptalning biskupa sýnir, að ísland hefir verið hluti af
hinum stóra heimi, en á yztu takmörkum hans. Straumar hafa
legið hingað frá Englandi, Saxlandi, Skotlandi eða írlandi, Róm
og ef til vill Armeníu.
Þegar ísleifur Gissurarson varð biskup, verður að álíta, að
áhrifin frá Norður-Þýzkalandi hafi verið orðin nokkuð sterk,
þar sem hann hafði dvalizt við nám í klaustraskólanum í Vest-
falen. Gissur biskup, sonur hans, hafði einnig stundað nám á
Þýzkalandi og innleiddi tíundina eftir þýzkri fyrirmynd, þó með
vissum þýðingarmiklum breytingum.
Næstir koma tveir þekktir menn fram á sjónarsviðið, Sæ-
mundur fróði Sigfússon og skyldmenni hans og jafnaldri Jón
Ögmundsson, fyrstur biskupa á Hólum og dýrlingur Norðlend-
inga. Sæmundur hefir verið við nám á Frakklandi, og er talið
af sumum, að hann hafi þar verið í klausturskólanum í Bec í
Normandí. Á eftir mun hann hafa stundað framhaldsnám, en
eigi er vitað, hvar það hafi verið. Jón Ögmundsson spurði hann
uppi á námsferð og fékk hann til að fara heim með sér. Hafði
það mikla þýðingu, m. a. fyrir bókmenntir landsins, sem fengu
mikla örvun frá skóla þeim, er Sæmundur stofnaði til í Odda.
Auk þessara má nefna Þorlák helga Þórhallsson og systur-
son hans og eftirmann Pál Jónsson, biskupa í Skálholti, en Páll
var sonarsonarsonur Sæmundar fróða. Þorlákur helgi var við
nám í París og í Lincoln. Menntun hans var eins góð og unnt
var að afla sér. Þar sem hann einnig var auðmjúkur og guð-
hræddur kirkjunnar þjónn og skjólstæðingur hins volduga Jóns
Loftssonar, föður Páls, voru eigi miklir erfiðleikar á, að hann
yrði biskup. Páll Jónsson hafði einnig öðlazt góða menntun er-
lendis, í Englandi.