Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.03.1955, Side 42

Kirkjuritið - 01.03.1955, Side 42
136 KIRKJURITIÐ aftan, við fætur hans grátandi, og tók til að væta fætur hans með tárum sínum og þerraði þá með höfuðhári sínu, kyssti fætur hans og smurði þá með smyrslunum". Faríse- inn hugsar með sér, að ekki sé Jesús spámannlega vaxinn, að hann skuli ekki sjá, að kona þessi er bersyndug. Þetta verður til þess að nokkur orð fara milli þeirra, þar sem Jesús bendir á, hve þessi vesalings kona hafi sýnt honum meiri kærleika en Faríseinn, og boðar henni fyrirgefningu syndanna, og frelsun fyrir trú hennar. Rétt á eftir er svo sagt frá Maríu Magdalenu og fleiri konum, er fylgdu honum (Lúk. 8, 2), eins og áður er getið. 2. Þá eru frásagnir í Mark. 14, 3—9 og Matt. 26, 6—13 um smurninguna í Betaníu. Eru þær svo líkar, að enginn vafi er á því, að þær eru ein og sama saga, aðeins lítils- háttar orðamunur. Jesús liggur til borðs í húsi Símonar líkþráa. Kom þá kona með alabastursbuðk með dýrum smyrslum (Mark. auk þess „ómenguðum, pistikes, nardussmyrslum“) og hellti yfir ‘höfuð honum. Þessi eyðsla hneykslaði suma, og töldu þeir, að nær hefði verið að selja smyrslin (Matt.: „miklu verði“, Mark.: „fyrir meira en þrjú hundruð den- ara“) og gefa fátækum andvirðið, en Jesús ver konuna og kveður þetta verk munu verða henni til ævarandi sóma. 3. Frásaga í Jóhannesarguðspjalli um smurningu í Betaníu (Jóh. 12, 1—8). Jesús kemur sex dögum fyrir páska til Betaniu og honum er búinn kveldverður, þar sem Marta gengur um beina, en Lazarus er við staddur. Þá tekur María systir hennar pund af „ómenguðum dýr- um nardussmyrslum" (orðið, sem þýtt er með ,,dýrum“ á báðum stöðum er ekki sama á griskunni, en „pistikes“ er notað) og smyr fætur Jesú og þerrar þá með hári sínu. Júdas hneykslast og spyr, hví smyrslin hafi ekki ' verið seld fyrir þrjú hundruð denara o. s. frv., en Jesús ver konuna með svipuðum orðum og í hinum guðspjöll- unum, þó er niðurlag orða hans ekki greint hér.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.