Kirkjuritið - 01.03.1955, Qupperneq 50
144
KIRKJURITIÐ
um vinsældum að fagna meðal sjómanna og síldarfólks. Fjöldi
gesta komu í heimsókn, lásu blöð og bækur, skrifuðu bréf,
hlýddu á útvarp, tefldu eða spiluðu. Nutu sjómenn þarna fyrir-
greiðslu með ýmsum hætti og var þeim látin öll þjónusta í
té endurgjaldslaust. Þetta allt mátu sjómennirnir og sýndu
hug sinn til heimilisins meðal annars með peningagjöfum.
Ýmis fyrirtæki, félög og einstaklingar styrktu heimilið með
fjárframlögum. Einnig naut það lítils háttar styrks úr ríkis-
sjóði. Nokkrar ágætar bækur bárust því að gjöf frá tveimur
bókaforlögum.
í gestabók heimilisins rituðu nöfn sín um 300 manns. Það
mun aðeins lítill hluti þeirra gesta, er heimilið sóttu. Þegar
tekið er tillit til þess fjölda, var reglusemi og umgengni sjó-
manna og annarra mjög til fyrirmyndar. Á þann hátt hafa
gestirnir ef til vill bezt vottað heimilinu þakklæti sitt og virð-
ingu.
Engum er ljósara en þeim, sem til þekkja, hver nauðsyn
er slíkrar stofnunar á Raufarhöfn. Að vísu gæti margt verið
fjölbreyttara og fullkomnara í starfi heimilisins. En núverandi
húsakynni leyfa ekki fjölþættari starfsemi, og starfsskilyrði
eru þar að ýmsu leyti ófullnægjandi.
Allt um það er þetta vísir að nýju og fullkomnara Sjómanna-
heimili, sem komast þarf upp á Raufarhöfn á næstu árum.
Að lokum vill undirritaður, fyrir hönd Sjómannaheimilis
Raufarhafnar, biðja Kirkjuritið að færa öllum þeim þakkir,
sem styrktu heimilið og studdu í fæðingunni, og hinum mörgu
gestum fyrir komuna.
Ingimar Ingimarsson.
KIRKJURITIÐ
keniur út 10 sinnum á ári. — Verð kr. 35.00.
Afgreiðsla hjá Elízabet Helgadóttur, Hringbraut 44. Sími 4776.