Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.03.1955, Page 44

Kirkjuritið - 01.03.1955, Page 44
138 KIRKJURITIÐ Frásögnin af smurningu Jesú í Lúk. 7 víkur verulega frá hinum frásögnunum. Hún virðist gerast norður í Galíleu, miklu fyrr á starfstima Jesú. Konan, sem smyr, er ,,bersyndug“. Húsbóndinn er Farísei, sem að vísu heitir Símon, en er ekki auðkenndur með viðurnefni. Símonar nafn var mjög algengt. Smurningin er hér ekki sett í sam- band við dauða Jesú, heldur er hún venjulegt vináttu- bragð. Á hinn bóginn eru nokkur líkingaratriði, er því valda, að sumir telja, að hér sé í raun og veru „útgáfa“ Lúkasar- guðspjalls af þessari frásögn, sem hin þrjú guðspjöllin hafa fært til svipaðs vegar. Sérstaklega er líkingin við Jóhannesarfrásögnina athygli verð. Hún er meiri en svo, að sjálfrátt geti verið. Konan smyr fætur Jesú og þerrar með hári sínu. En það, sem gerist eðlilega í Lúkasarfrá- sögninni, er undið úr eðlilegum skorðum í Jóh. Bersynd- uga konan í Lúk. 7 „vætir“, þ. e. þvær, fætur Jesú og þerrar með hári sínu, og smyr þær því næst. Þetta var venjuleg aðferð: þvo, þerra, smyrja. En í Jóh. þerrar kon- an sjálf smyrslin. Er þá frásögn Jóhannesar svona dæmalaust óhöndugleg, að hann api sitt eftir hverjum og fari með allt klaufalega, skilji ekkert, hvað fram fór, né viti, hvernig fætur voru þvegnir og smurðir? Eða er hann einmitt með rétta frásögn af viðburði, sem fór fram á svo undarlegan hátt, að hinir, sem þekktu minna til, breyttu í frásögninni í eðlilegra horf? Jóhannes væri þá hér að leiðrétta frásögnina. Og ef svo er, hvernig stóð á þessari einkennilegu aðferð Maríu í Betaníu. Þetta mætti skýra á þennan hátt: Sagan í Lúk. 7 er önnur saga en af smurningunni í Betaníu. Þetta mun vera algengasta skoðunin. En lík- ingin við Jóhannesarfrásögnina stafar af því, að konan er ein og hin sama. María í Betaníu er ,,bersynduga“ konan í frásögn Lúk-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.