Kirkjuritið - 01.03.1955, Síða 46
140
KIRKJURITIÐ
eftir sambandinu ætti að vera í Galíleu, en þarf þó ekki
að vera. Jesús er ,,á ferð“, ef til vill einmitt til Jerúsalem,
til dæmis á páskum. Þar tekur „kona ein að nafni Marta“
móti honum. ,,Og hún átti systur, er hét María.“ Þessi
systir virðist vera hálfgerður gestur, og hún er ekki neitt
,,húsleg“. En hún fer þegar í stað og sezt við fætur Jesú.
Innibyrgð þrá fær útrás, þegar er Jesús kemur inn í húsið.
Sagan er svo kunn, að ekki þarf að segja hana. En Jesús
tekur enn hennar svari.
2. Frásögnin langa og mikla af uppvakning Lazarusar
í Jóh. 11. Þar eru systur, sem heita Marta og María, þær
sömu sem í næsta kapítula eru við smurningu Jesú, eins
og áður er getið.
I upphafi þeirrar frásögu er María kynnt með undar-
legum hætti, sem enn er metið höfundi Jóhannesarguð-
spjalls til skeytingarleysis í frásögn. Þar segir: „En María
var sú, er smurði drottin smyrslum og þerraði fætur hans
með hári sínu.“ Þetta kemur kynlega fyrir, af því að þetta
atvik var þá ekki fram farið, og ekki sagt frá því fyrr en
síðar. Á hinn bóginn kemur þetta vel heim, ef hér var
einmitt sama konan, sem áður hafði gert þetta og var
svo frægt, að hver maður kannaðist við það. Það sézt bæði
hér og víðar, að Jóhannes telur frásagnir hinna guðspjall-
anna kunnar, þó að hann geti þeirra ekki. 1 raun og veru
segir Jóhannes hér: María þessi var bersynduga konan,
sem Lúkasarguðspjall segir frá. Ef tvær konur hefðu smurt
Jesú þannig, var þetta ekki neitt sérkenni á Maríu, systur
Mörtu.
Frásögn þessa er annars ekki ástæða til að rekja. Eng-
inn mun draga í efa, að þessar systur, sem Lúk. og Jóh.
nefna, séu þær sömu, enda kemur ólíkt eðlisfar þeirra og
aðstæður fram merkilega vel. Marta er röskari og fer
umsvifalaust á móti Jesú (Jóh. 11, 20), en María er fjær
viðburðunum og umstanginu, Marta verður beinlínis að
kalla á hana (Jóh. 11, 20, 28), og í 12. kap. er Marta
húsmóðirin eins og í Lúk. 10.