Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.05.1956, Side 13

Kirkjuritið - 01.05.1956, Side 13
VARNIR GEGN GLÆPARITUM 203 gáfa og sala á ritum og myndasöguheftum, þar sem aðaláherzl- an er lögð á skelfingu, grimmd og ofbeldi. Að vísu hafa frá- sagnir um bardaga, ofbeldi og afbrot verið til á öllum tímum, en óhætt er að fullyrða, að eftir síðustu heimsstyrjöld hafa þess- ar frásagnir og sögur tekið á sig nýjan og áður óþekktan svip. í ritum þessum og sérstaklega myndasöguheftum, sem beinlínis eru ætluð unglingum, er atburðum lýst með hryllilegra hætti en áður voru almennt dæmi til. Auk þess eru ofbeldisverkin ■ yfirleitt ekki látin eiga sér neinn sérstakan tilgang. Þau eru oft- ast óháð öðru en nautninni af að valda meini og þjáningum með misþyrmingum og öðrum ofbeldisglæpúm. Hver, sem kynn- ir sér hin amerísku myndasöguhefti, sem erlendis ganga undir nafninu „Crime Comics“ eða „Horror Comics“ (hér venjulega nefnd hasardblöð), mun fljótlega sjá, að hér er ekkert ofsagt, enda má um álit manna á þessari bókmenntategund skírskota til umræðna á löggjafarþingum Englands og Kanada, er lög um bann við dreifingu þessara rita var þar í undirbúningi. í ritum þessum e'ru einnig oft ógeðslegar lýsingar á kynferðislífi, en ég niun ekki ræða þá hlið málsins hér, þar sem í hegningarlöggjöf Norðurlanda eru ákvæði, sem leggja refsingu við útgáfu og dreifingu á ritum og myndum með slíku efni. Hins vegar eru engin ákvæði í löggjöf Norðurlanda, er leggi bann við útgáfu eða dreifingu á þeim ritum, er áður var getið, þar sem aðallega er lýst misþyrmingum og öðrum ofbeldisverkum. II. Að því er ísland varðar, þá hefir útgáfa og sala á umræddum ritum farið mjög í vöxt á síðustu árurn, en jafnframt liefir risið sterk andúðaralda hjá almenningi gegn þeim. Á síðasta þingi Landssambands íslenzkra framhaldsskólakennara voru samþykkt tilmæli til Alþingis og ríkisstjórnarinnar um, að gerðar yrðu ráð- stafanir til að hefta útgáfu og dreifingu rita, sem flvtja á sið- spillandi hátt frásagnir um kynferðismál og glæpamál, og að bannaður verði innflutningur á glæparitum. Ég skal í stuttu ’ttali gera grein fyrir, hvers konar rit það eru, sem hér er eink- um um að ræða.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.