Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.05.1956, Blaðsíða 20

Kirkjuritið - 01.05.1956, Blaðsíða 20
210 KIRKJURITIÐ ritningarorð sýna, að gjöf andans var talin sjálfsögð í fyrstu kristni. Hinir frægu kaflar í I. Kor. (12-14) lýsa því hins vegar skýrt og ógleymanlega, hverjar andagáfumar voru og hvers þær voru metnar. Og ekki má gleymast, að Páll taldi bróðurkærleik- ann mesta undrið. En vér hljótum að spyrja, hvað sé satt í nútíðinni og hvað oss standi til boða. Ekki fæ ég séð, hvernig hægt er að halda kristinni trú án sann- færingar um kraft frá hæðum. Trúin á sjálfan frelsarann er því bundin, að hann hafi verið sendur frá himni. Sjálfur taldi hann sig verða að sækja kraft til hæða, m. a. til lækninga. Náttúran og lífið allt virðist og bera himinkrafti næg vitni daglega. Hann- es Hafstein kvað um Jón Sigurðsson: „Hans von er í blænum á vorin, hans vilji og starf í grænkandi lund.“ Fallega sagt. En er þetta ekki enn sannara um sjálfan skap- arann? Umsköpunarmáttur andans. í stað trúfræðilegra útlistana og háspekilegra bollalegginga um eðli heilags anda, tel ég þarfara að minnast áhrifa hans, — umsköpunarmáttar hans. Það er sannarlega undur að sjá hvítt og dýrlegt blóm koma upp úr svartri og kaldri moldinni. Enn dásamlegra samt, þegar vílluráfandi, spilltir og vonlausir menn verða nýir menn, mannperlur, fyrir andleg áhrif. Þegar í grárri fornöld bað sálmaskáld: „Skapa í mér hreint hjarta. ó, Guð, og veit mér nýjan, stöðugan anda.“

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.